The Last Blog of 2009

Wednesday, 30. December 2009

Hello everyone! My last blog of the year will be in English (no not American) just for the fun of it, and I figured I should write it now before I start to get rusty. I haven’t written anything for a while now so this will cover a lot of stuff that’s happened the last couple of months. Now where to begin…

The soccer season went great. We ended up as Peach Belt Champions for the first time in AASU history and we also got to the second round in the NCAA. Maybe we should have gotten further there but I don’t care what anyone says, I think my team did great! When the season was over I finally got to spend a weekend at home after being away for 8 weekends straight. It felt good to relax for a change, and I think the girls agree with me.

The FinalHere we are, ready for the final vs. Montevallo.

Me, Lianne & Kales Champs

Here’s me, Lianne & Kayley after the game.

Me and BJ Champs

… & The foreigners!

Now that soccer season was over we finally got to celebrate the victory with some quality post Halloween party. The theme was L-E-T-T-E-R, so basically you had to dress up as something that starts with the same letter as either your first name or surname… in my case I picked P-risoner for P-etursdottir. And orange scrub pants, a wife beater and a tramp stamp later, VOILÁ! I prisoner was born. Tomas was a G-uard for the occasion for G-udmundsson and Bjorg was a B-arbarian warrior. The team was pretty colorful and it was really one of the best parties we’ve had together.

Halloween '09*Prisoner – Barbarian Warrior – Guard*
Halloween. '09The Team!

I went to Atlanta with Kayley, Chip and Björg to spend Thanksgiving at Davi’s place. I had never been there before so the foreigners along with Katie went to the Coca Cola Factory. It was interesting and delicious! It was fun being among such big buildings for a change, and the tourist that I am took a lot of pictures of course. Thanksgiving itself was really great. We got pilgrim & Indian food a la Garcia and it was soooo good. We just sat at the dinner table, eating and talking, really for at least 2 hours. It was great. We also went to Dave and Buster’s, which was new for me too. Bjorg and I gathered our tickets together in hope of winning a couple of shot glasses, and in the end with some help from Kayley and Katie, we were successful.

Coca Cola FactoryHere we are at the Coca Cola Factory, Björg, Kayle, me & Katie.
Turkey DinnerDavi and me being pilgrims and eating the turkey, Bjorg.
Garcia FamilyHere we are with the Garcia family outside their beautiful home.

The best roommates in the world took me out to dinner and had made me a poster with all our good memories together. I couldn’t read it without getting dust in my eyes for some reason so with breaks I finally got to read it all. Its one of the best things someone has ever given me, thanks guys! And I am proud to say that I got it home with me safely.

The Best RoomiesThe best roommates in the world!

As soon as school was over it was just party all the way and saying good-bye to everyone. Not my favorite part but we had a good time.

Foreigners!We had a foreigners night. I had so much fun and will never forget it!
End of the Night… maybe a little too much fun?? haha, never!

FleamarketI also went to the flea market with Katie, Danni, Kayley, Amber & Tomas. It was huuuuge but fun to go look at some interesting things. You can basically find everything there, even cute puppies!

The trip back home was… interesting. Tomas, Bjorg and I went to Orlando for a couple of days before our flight home. We had found the incredibly cheap deal online… but apparently, not everything had been included. So when we get there we end up spending about 150 more dollars… each! Sooo nope, I’m not doing that again, haha. But we had a good time. Tomas turned 23 on the 16th and Bjorg got the Fridays people to sing for him. He was really happy about that btw, haha. But since he had to spend is birthday traveling it will be celebrated some other day. We spent a lot of time shopping… which wasn’t a really good idea since we didn’t have space for any of it. Kristin helped us with the luggage down to Orlando so the train ride wasn’t too bad, thanks again!!! But when we had to get to the airport it was a different story. We had to go two separate trips just to get the bags to the airport. So there I am, sitting in a phone booth, guarding 7 huge bags and a TV while Tomas went to pick up BJ and the rest. People were staring and probably wondering why I was alone with all that stuff, but I just took advantage of the free internet and started facebooking. When we finally got all the bags and ourselves to the airport they told us we couldn’t take everything with us without paying like $360. I can’t really say what happened, but after getting yelled at by some woman that really needs to find herself a guy asap, I’m afraid to share it with you here. But long story short, we’re here safely with all our stuff!

Kristin & AliKristin & Ali brought us our bags. THANK YOU!
Johnny RocketsWe decided to go All American for our last days and had a Johnny Rockets burger with fries and a strawberry milkshake, mmmmm.

I hope you all had a wonderful Christmas and got lots of presents. Miss you a lot and I can’t wait to go visit, see you soon! and Happy New Year!!!

Luvs,
Þórdís, aka Thordis
xoxo

What a Month!

Tuesday, 27. October 2009

Sæl öll sömul. Ég ákvað loksins að blogga og setja inn nokkrar myndir af því sem hefur verið að gerast undanfarið í tilefni þess að ég var að fá nýja myndavél, jeijj! En nú er spurning hvar ég eigi að byrja…

Við komum okkur loksins fyrir í íbúðinni, keyptum nokkur plaggöt, hengdum upp myndir og síðast en ekki síst… fór ég í efnabúð og hengdi upp efni fyrir gluggann okkar með teiknibólum og bjó til gardínur! Ekki er ég bara það fullorðin að geta eldað fyrir heimilið heldur er ég farin að “sauma” gardínur.

Fótboltinn er búinn að vera algjör rússibana ferð, við byrjuðum alveg frábærlega en fórum svo aðeins að slaka á… þangað til enginn átti séns í að vinna okkur og svo í að tapa tveimur leikjum í röð… Með þessu ferðalagi hef ég áttað mig á einu í sambandi með Bandaríkjamenn, og það er að þegar við erum heima að horfa á bíómyndir um íþróttir og þjálfararnir og leikmennirnir eru að halda allar þessar dramatísku ræður þá hugsum við með okkur, “vá hvað þetta er mikið Hollywood,” en ég er hins vegar búin að komast að því að þetta ætti að vera: “vá hvað þetta er Bandarískt!”.

Við stelpurnar erum búnar að eyða alveg rosalega miklum tíma í rútu síðastliðinn mánuð en flestir leikirnir okkar eru búnir að vera útileikir. Þá er um að gera að taka með sér skólabækur og vera duglegar að læra! Hér eru tvær myndir af stelpum sem hafa verið alveg einstaklega duglegar að læra:

Erin Sofandi

Björg Sofandi

Hér eru Erin og Björg virkilega að einbeita sér að náminu, Björg ákvað að taka hugsuðinn á þetta!… er þetta vonta af mér? nei nei… haha

Við erum til dæmis á leiðinni heim í rútunni eftir einn góðan sigur leik, unnum 5-1, þannig að við erum allar að koma til. Nú eru hins vegar bara tveir leikir eftir af venjulegu tímabili og svo hefjast tvær úrslitakeppnir. Önnur er fyrir fylkið okkar, eða Peach Bealt Conference og svo komumst við vonandi í úrslitakeppnina hjá NCAA en þar koma saman bestu lið allra fylkjanna og keppast um, jah, ekki Íslandsmeistara titilinn heldur Bandaríkjameistara titilinn býst ég við. En markmiðið okkar er að komast í þau úrslit.

Halloween fer að nálgast og að sjálfsögðu eru allar búðir fylltar af gómsætu nammi til að gefa krökkunum og allir garðar eru orðnir vel skreyttir. Svo svona til að koma mér í stemninguna þá litaði ég mynd af Bangsímon og Tígra í Halloween búningunum sínum áðan á leiðinni á leikinn! En við munum því miður missa af Halloween þetta árið þar sem að við verðum að keppa í Tennesse sem er í 8 klukkutíma fjarlægð, en við munum bara halda upp á það seinna.

Spilakvöld.

Hér erum við stelpurnar að spila “Sugar” á hótelinu okkar. Þessi leikur er svona blanda af Laumu og A-S-N-I.

Við Tommi erum búin að ákveða að flytja heim eftir áramót. Ætlum okkur að byrja að leigja vonandi í Kópavoginum eða Reykjavík, þannig að ef þið vitið um einhverja íbúð sem er að losna þá megið þið endilega láta okkur vita. Það er skrítið að hugsa til þess að koma aftur heim í kuldann en ég veit að það á eftir að vera gott að koma heim.

Pabbi Bjargar var í heimsókn hjá okkur í viku en hann fór einmitt aftur heim snemma í morgun. Ég verð að segja að hann dekraði dáldið við okkur, eldaði gúrme mat handa okkur og fór með okkur í mollið og svona. Það var mjög gaman að hafa gest hjá okkur og þið eruð öll ávallt velkomin! En Steini kom með gull medlíurnar handa mér, Björgu og Lee. Við ákváðum að gera okkar eigin “athöfn” við afhendinguna og buðum Lee í mat til okkar. Hér erum við svo allar medalíurnar okkar….. Ég segi bara betra seint en aldrei!

Björg og Steini

Hér eru þau feðgin.

Afhending.

Steini að afhenda medalíurnar.

Real Gold!

Íslandsmeistarar, bara að vera viss um að þetta sé ekta!

Jebb..

Íslandsmeistari, fyrir utan húsið okkar.

Jæja, nú þarf ég að fara að læra undir próf… Anatómían alltaf skemmtileg. En vonandi hafið þið það öll gott!

Ástarkveðjur,

Þórdís

What A Breeze…

Tuesday, 8. September 2009

Sæl öll sömul! Ég hef ákveðið að byrja að blogga á ný og í tilefni þess ætla ég að byrja á einu löngu og góðu. Nú er ég búin að vera hér í  rétt rúman mánuð og það hefur heldur betur margt gerst á þeim tíma. Að gera herbergið heimilislegt er ekki eitt af því…

Ég, Tommi og Björg skelltum okkur til Orlando í 3 daga áður en haldið var til Savannah. Við höfðum stuttan tíma en nýttum hann þó vel. Á fyrsta degi fórum við í golf og spiluðum eftir bestu getu. Við vorum seinust á vellinum og eyddum nánast öllum deginum þar… þrátt fyrir okkar miklu hæfileika. Um kvöldið ákváðum við hins vegar að skella okkur á City Walk og fengum okkur rosa góðan mat á Hard Rock. Þjónarnir voru svo ánægðir með að fá okkur í heimsókn að þau hoppuðu upp á borð og dönsuðu YMCA við mikinn fögnuð.

Ég og Tommi
Ég og Tommi á City Walk

Björg og Tommi
Björg og Tommi… Eitthvað vandró… haha

Við skelltum okkur í vatnsrennibrautagarð daginn eftir og fór mesti tíminn í að standa í röð…………………………………………….. til að fara í eitt tæki urðum við að bíða í minnsta lagi klukkutíma og ég er ekki frá því að við höfum náð að renna okkur niður einhverja braut samtals 5 sinnum….. á einum degi…. money well spent…. en þetta var bara æðislegt. Við fórum í eina braut sem fer í 90 gráðu fall en ekki nóg með það heldur gengum við inn í eldflaug og hurð var lokuð á eftir okkur, eitt í einu, og svo allt í einu dettur gólfið undan manni og Voilá! Þú ert í frjálsu falli…. Björg var í sjokki afþví að hún hefur aldrei heyrt mig öskra jafn… jah…. stelpulega…. haha.

Við eyddum restinni af dvölinni í að versla, versla og versla aðeins meira. Við urðum að versla fyrir íbúðina; diska, glös, ruslatunnu og allt það og því skelltum við okkur í IKEA. Þessi verslun var alveg eins og búðin á Íslandi þannig að við rötuðum alveg fullkomlega vel.  Einum degi, nokkruð hundruð dollurum og troðfullum bílaleigubíl seinna vorum við loksins á leið til Savannah.
PotteryBarn
Ég og Tommi fyrir utan Potterybarn, svona eins og í FRIENDS! Við vorum ekkert smá spennt… haha

Shopping
Fötin sem við versluðum okkur…

Þegar við fengum íbúðina okkar var hún vægast sagt ógeðsleg. Það voru dauðar pöddur og köngulær á gólfinu, hola í veggnum, blettir í þakinu, grútskítugt teppið, ógeðslegt baðið og já margt fleira. Það versta var að það var kattarhlands lykt af dýnunni okkar Tomma þannig að hann eyddi fyrstu nóttinni í sófanum og ég til fóta hjá Björgu… Við urðum að láta laga þetta strax þannig að við fórum og kvörtuðum án tafar og smátt og smátt var þetta allt lagað. Við Tommi keyptum okkur svo nýja og stærri dýnu til að láta fara betur um okkur. Þannig að það má segja að íbúðin sé öll að koma til þótt seint sé en nú á bara eftir að skreyta hana betur og gera hana heimilislegri þannig að ég set myndir af henni seinna.

Rúmið Okkar
Hér er nýja rúmið okkar Tomma… Vil bara minnast á það að það er alltaf svona vel búið um það… alveg satt!

Fótboltinn var algjört hell þegar við komum hingað fyrst. Við byrjuðum í pre-season sem var í rúma 10 daga. Pre-seasonið var svona: 8.00 – fitness test sem gerir alveg útaf við þig, 10.00 – 2ja tíma löng æfing og að lokum 17.00 – önnur 2ja tíma æfing. Þannig var þetta fyrstu 10 dagana en svo byrjaði skólinn sem bjargaði okkur, þá var bara ein 2ja tíma æfing á dag. Við hörkuðum þetta þó af okkur og nú erum við komnar á rétt ról. Við erum búnar að spila 4 leiki samtals og af þeim unnum við 3 en töpuðum 1. Þannig að þetta var alveg ágætis byrjun. Við munum eiga fleiri útileiki en heimaleiki þetta árið þannig að ég verð mikið á ferðinni. Um helgina t.d. eyddi ég samtals 10 tímum í rútu… en svona er þetta bara. Á meðan við Björg skólumst og fótboltumst er Tommi alveg á fullu að vinna. Hann er svo duglegur! Búinn að koma sér vel fyrir með litla “skrifstofu” hliðiná skrifborðinu mínu en ég set inn myndir af því næst.

Ég og Björg
Ég og Björg, tilbúnar að keppa á móti indjánunum í Catawba (unnum 3-1).

GameDay
Á leið að hita upp fyrir leikinn.

Foreldrar
Foreldrarnir tóku sig til og höfðu tilbúinn mat fyrir okkur eftir leikinn. Þetta tjald er alltaf mætt á staðinn þar sem við erum að fara að keppa.

Næsti leikur er í Tampa, Flórída þannig að við munum keyra 7 tíma þangað, keppa kl. 7 um kvöldið og keyra svo til baka… haha ég hlæ bara að þessu. Þetta verður eitthvað skrautlegt. Sérstaklega þar sem að stelpurnar þurfa að fara í skólann daginn eftir. Sem minnir mig á það að ég er í fríi á föstudögum! Jeijj!

Da Bus
Hér erum við í rútunni að hlusta á þjálfarann.

Við erum bíllaus hérna úti og nú erum við ekki með neina herbergisfélaga til að redda okkur þannig að við verðum einhvern veginn að skemmta okkur heima fyrir. Jake og Corey eru reglulegir gestir hjá okkur og því skelltum við okkur í skemmtilegan byssuleik með NERF byssum sem skjóta pílum. Ekkert smá ýktar byssur. Daginn eftir var íbúðin okkar eins og skotvöllur, full af byssuskotum út um allt. Ótrúlega gaman að þessu og góð leið til að finna barnið í sér!

Jake og Corey
Hér eru strákarnir að missa sig í byssuleiknum! Svo getið þið séð smá í hjólin okkar Bjargar sem við fengum okkur um daginn.

Jake hefur verið rosa góður við okkur og lánaði okkur m.a. 26” plasma sjónvarpið sitt og x-boxið sitt… sem Tomma leiddist ekkert, haha. Þannig að núna erum við með eitthvað annað í stofunni heldur en bara borð og stóla sem er bara frábært.

InDaPool
Ég, Kelli, Erin og Björg skelltum okkur aðeins í laugina í dag þar sem að það er frídagur og engin æfing. Við létum það sko ekki stoppa okkur að sólina vantaði!

Að lokum vil ég minnast á það að við Björg erum orðnar Íslandsmeistarar! Sem þið væntanlega vitið, en ég er bara svo stolt af stelpunum að ég varð að minnast á þetta!!

Meira er það ekki í bili, má ekki hafa þetta of langt… En vonandi hafið þið það öll gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Gleðilega Páska! / Happy Easter!

Saturday, 11. April 2009

Sæl öllsömul, Gleðilega páska! En í tilefni þeirra hef ég ákveðið að gefa af mér eitt stk blogg og fyrirgefiði hvað ég hef verið löt í heila tvo mánuði. Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast þannig að undirbúið ykkur undir langan lestur. Ég er t.d. búin að kaupa flugmiðan heim. Ég lendi s.s. á klakanum þann 15. maí og það er komin alveg þvílík spenna í mig. Hlakka ótrúlega til íslenska sumarsins en að mínu mati er ekkert betra! .. En hvar á ég nú að byrja…

Valentínusardagurinn! Hann var hér þann 14. Febrúar en ein og þið vitið flest snýst dagurinn um að sýna hversu vænt manni þykir um fólkið í kringum sig eða kannski einn ákveðin aðila. Við skelltum okkur nokkrar úr boltanum út að borða um kvöldið. Við fórum á Japanskan stað þar sem kokkarnir elda matinn fyrir framan gestina og kasta honum í loftið og sýna alls konar kúnstir. Þetta var rosa gaman og mjög góður matur sem við fengum. Það kom mér svo skemmtilega á óvart þegar að eitthvað kemur fljúgandi úr háloftunum frá næsta borði og lendir ofan í kókinu mínu með látum. Þegar ég leit svo loksins í glasið reyndist þetta vera rækjuhali… hmmm.. ekki alveg það sem ég pantaði.

Stuttu eftir valentínusardaginn kom Tommi í heimsókn til mín. Erin O, og Jessy voru svo yndælar að keyra með mig niður til Orlando að sækja hann á flugvöllinn. Það var alveg æðislegt að hafa hann hjá mér og við gerðum margt skemmtilegt. Hann kom með ýmislegt íslenskt að heiman sem gerði dvölina hérna heldur betur auðveldari og svo fékk ég geisladisk frá Katrínu og Lenu sem ég hlusta nú reglulega á. Takk öll! Þið eruð æði!
Við Tommi skelltum okkur einn daginn niður í miðbæ og löbbuðum göngugöturnar og fallegu garðana. Eitthvað sem ég hef reyndar ekki gert síðan ég kom hingað. Við fórum svo auðvitað í smá verslunarferð og fengum alveg frábæran díl í uppáhalds búðinni minni Pac Sun. Borgðum ca $18 á mann og gengum út með þrjá troðfulla poka.

Tommi og ég í einum af görðunum.

Eitt kvöldið var tekið frá fyrir íslendingana í Savannah, Rebekku, Ellert og Ásgeir og fórum við öll út að borða á Jazz tapas bar. Rosa gaman og góður matur.

Björg, Ellert, Rebekka, Ásgeir, Tommi og ég á Jazz’d.

Við skelltum okkur niðrí bæ eitt kvöldin og hituðum upp með Ásgeiri sem býr einmitt á campus. Þegar við komum loksins niður í bæ fórum við inn á nokkra skemmtilega staði og á meðal þeirra var Roof Top. Þar kynntist ég einni konu sem er fertug en lítur út fyrir að vera 28 ára. Mér fannst þetta svo ótrúlegt en hún veifaði bara höndunum frá hægri til vinstri fyrir framan andiltið sitt og sagði “No babies, no babies”, mjög fyndin kona. Við héldum svo áfram og fórum á Murphys. Þar hittum við nokkrar stelpur úr liðinu og skemmtum okkur konunglega með þeim.

Björg, ég og Tommi að byrja kvöldið.

Tommi í djúpum samræðum um Ísland við þennan mann sem við hittum um leið og við stigum út úr leigubílnum.
Eftir 10 daga dvöl skutlaði ég svo Tomma á lestarstöðina. Það var erfitt að kveðja hann en ég huggaði mig þó við það að þetta var vonandi í síðasta skiptið sem við þurfum þess.

Hér erum við að borða á Olive Garden eitt kvöldið, mmmmmmm!

Viku eftir að Tommi fór kom svo Spring Break eða Spring Break WOOB WOOB réttara sagt. Ég, Björg og Kayley fórum með Carey til Panama City sem er í Florída. Við gistum heima hjá Carey þar sem að mamma hennar dekraði heldur betur við okkur.
Það kom mér á óvart hvað það var ótrúlega mikið af fólki þarna og ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurn tíman séð jafn mikið af áfengi á sama stað og þarna. Margfaldið eyjar með 100 þá kannski skiljið þið mig. Flestir dagar voru eins, við byrjðum daginn á ströndinni en svo um kvöldið tók fjörugt næturlíf við. Móðir Carey var sem betur fer með réttu tengslin þannig að við komumst oftast inn á staði VIP með lögreglufylgd og ég er ekki frá því að ég hafi sparað $150 dollara á að þurfa ekki að borga inn á staði.
Eitt kvöldið fórum við á stærsta skemmtistað Bandaríkjanna sem heitir La Vela. Við vorum búnar að heyra það að Kendra, sem er ein af playboy stelpunum í þáttunum “The girls next door”, væri að skemmta sér þar eitt kvöldið. Við alveg ótrúlega spenntar förum og leitum að henni. Ég sá hana loksins á 2 hæðinni þannig að við hlupum niður af 3ju og loksins náðum við til hennar og ég náði þessari yndisleg mynd af okkur með henni:

Hér erum við allar með Kendru (í hvíta bolnum). Rosa stolt af myndatökunni minni!

Carey, Kayley, Björg og ég, rosa ánægðar með afrek kvöldsins.

Annað sem stendur upp úr er að einn daginn skellti ég mér með Kayley á tónleika á ströndinni og þar sáum við N.E.R.D.  og svo loks Flo-Rida sem var alveg geggjað! Hann tók m.a. uppáhalds lagið okkar Aronar “Low”. Ég var því miður ekki með myndavélina mína og síminn hennar Kayley varð batteríslaus. Þið getið hins vegar séð okkur á youtube ef þið leitið að MTV Flo-Rida Panama City Beach… ehmm… smá langsótt en það sakar ekki að reyna!

Hér erum við á fyrsta kvöldinu okkar.

Við tókum oftast stelpumynd áður en við lögðum af stað niðrí bæinn. Hér er fyrsta.

Tracey (var með okkur seinustu 2 kvöldin), Björg, Carey, ég og Kayley.

Tracey, ég, Kayley og Carey á Harppon Harry’s.

Hér erum við á ströndinni, namminamm.

Ég bætti tímann í þrautabraut hersins sem var á ströndinni. Újeh!

Við skelltum okkur svo að sjálfsögðu á nautið! haha.

Þegar ég kom heim úr fríinu tók harkan aftur við. Nú þurfti að skila inn nokkrum skilaverkefnum, taka nokkur próf og hlaupa úr mér allt vit í fótboltanum. Við erum nú búnar að spila 3 leiki og ég er búin að skora í þeim 2 mörk. Svo gerði Björg eitt gullfallegt íslendingamark þar sem að ég tók hornspyrnu og hún skallaði boltann beint í netið.

Fótboltaliðið skellti sér svo í lazer tag föstudaginn var. Þetta var í fyrsta sinn sem ég spila lazer tag og ég varð ástfangið af leiknum! Ég lifði mig reyndar aðeins of mikið inn í þetta og gekk haltrandi út. Við spiluðum eldri á móti yngri og þar sem að ég er tæknilega freshmen var ég með þeim yngri. Og já.. við unnum ekki… en við börðumst með prýði!

Hún Dagbjört vinkona mín átti svo afmæli í gær en nú er hún orðin 21 árs. Til hamingju dúllan mín! Mig langaði að skella inn mynd af henni og Lindu en þær eru nú farnar til Noregs að spila fótbolta, rosa flott hjá þeim.

Linda í miðjunni og Dabjört lengst til hægri.

Nú er ég stödd í Ocala einu sinni enn heima hjá Kristin. Björg er reyndar ekki með mér heldur er hún að heimsækja vin sinn sem er einmitt líka í Ocala hjá ömmu sinni og afa. Ég hef ekki aldrei verið án Bjargar í Bandaríkjunum þegar ég hugsa um það og ég er ekki frá því að ég sé komin með smá fráhvarfseinkenni, haha.

Í dag ætlum við Kristin að spila smá golf eins og fólk gerir best í Flórída og svo leitum við að páskaeggjum á sunndaginn. Spennandi helgi framundan! Var ég búin að minnast á að það var 30 stiga hiti hér í dag? úff og það er bara apríl…

Jæja ég verð nú að hætta og til hamingju þið sem kláruðuð að lesa! Vonandi hafið þið það öll gott.

Ástarkveðjur,
Þórdís

Here it Comes

Friday, 13. February 2009

Sæl öll sömul. Ég vil biðja á að þakka ykkur fyrir að vera svona þolinmóð en ég hef klárlega ekki verið að standa mig í að blogga. Nú eru liðnar u.þ.b. 3 vikur síðan ég bloggaði síðast og ja, það hefur svona hitt og þetta gerst síðan þá.

Ég tók þá skynsamlegu ákvörðun að hætta í ensku fyrir tveim vikum. Það var kannski ekki það að þetta væri eitthvað erfitt en bara einfaldlega hrikalega leiðinlegt. Ég get ekki sagt að bókmenntir, ljóð og höfundar séu í uppáhaldi hjá mér í íslensku, hvað þá ensku… En nú er ég líka í fríi á föstudögum sem er mesta snilld í heimi. Á föstudögum og mánudögum eru reyndar lyftingar kl. 6.45 að morgni til og það er ekkert sem ég elska heitar! ehemm…. En ég er ennþá aum eftir síðustu lyftingar og á erfitt með að ganga, labba upp tröppur og já, að setjast á klóstið er algjört pain in the legs!

Svona er staðan eftir fyrstu umferð af fitness prófum og helling helling af hlaupum.

Í staðin fyrir KSÍ erum við með samtök sem heita NCAA. Þessi samtök eru frekar kjánaleg að mínu mati og með allt of mikið af reglum. Núna er t.d. undirbúningstímabil og við megum ekki æfa saman sem heilt lið til að byrja með þannig að við verðum að æfa í nokkrum litlum hópum í staðin. Ég er í 3 manna hóp á þriðjudögum (framherjar) og í 4 manna hóp á fimmtudögum. Ég reyni að líta á björtu hliðarnar á þessu fyrirkomulagi, slatti af einkaþjálfun og það er aldrei leiðinlegt.

Ég er byrjuð að vinna aðeins líka á heimaleikjum í körfubolta og hafnarbolta. Selja pulsur, pizzur, hamborgara, popp, nammi og kók. Alls konar hollustuvörur að hætti Bandaríkjamanna. En á sunnudaginn var var ég að vinna á fyrsta hafnarboltaleiknum mínum nema það að ég var ein. Þurfti að grilla, sjá um sjoppuna og selja inn. Mikið rosalega var ég fegin að vera kvk því ef ég gæti ekki gert tvennt í einu veit ég ekki alveg hvar ég væri stödd núna. Ekki hjálpaði það að ég skar mig á putta og það fossblæddi, ég er enn að vona að það hafi ekkert farið í pulsurnar hjá fólkinu…

Ein stelpan í liðinu, Kayley, átti afmæli um daginn og í tilefni þess var haldið surprice partý handa henni. Þetta var alveg rosalega gaman, slatti af fólki sem mætti líka. Þetta var svona týpisk stemning eins og við sjáum í bíómyndunum, ljósin slökkt, allir að sussa á alla og svo þegar aðilinn labbar inn er kveikt á öllu og öskrað SURPRIIIIIICE! Alveg æðislega gaman. Daginn eftir fórum við svo út að borða með afmælisbarninu á skoskan stað en hún er semsagt skoti. Ég fékk mér Guinnes Stew. Það var mjög bragðgott og gaman að prófa eitthvað nýtt.

Hér erum við komnar í gírinn eftir að hafa komið henni vel á óvart.

Hér erum við á Skoska staðnum, Lianne, Kayley, Björg og ég. Þið getið séð skoska fánann á sérvréttunum… mikið rosalega er ég hvít…

Kristin og Jamie komu með okkur líka.

Við höfum skellt okkur niður í bæ allar helgar núna og ég býst við því að fara aftur þessa helgi. Stemningin er ekkert mjög ósvipuð heima, maður hittir mikið af fólki á götunni og staðirnir eru skemmtilegir. Það eru reyndar mikið af evrópskum pubum hérna með trúbadorum sem er aldrei leiðinlegt. Ég hef heyrt alls konar mismunandi picku up línur í gegnum tíðina og sumar hverjar ekki alveg að gera sig. Ég fékk einmitt eina skemmtilega seinustu helgi, verst að ég var edrú og hló bara að greyið stráknum. Hann gekk að mér, horfði í gringum sig og sagði, hvað er allt þetta fólk að gera hérna ég hélt það ætti bara að vera þú og ég í kvöld… jámm, sætt? kjánalegt? hvað finnst ykkur??

Hér er gömul mynd frá 80’s kvöldinu. Ég og Björg vorum einmitt með Rebekku (lengst til hægri), Ellert og Ásgeir seinasta föstudag og stelpurnar komu að sjálfsögðu líka. Það var haldið 70’s kvöld þá líka en ég laggði reyndar ekki í það að dressa mig upp eins og þarna.

Ég er búin að eyða löngum stundum í að teikna þessa dagana og mætti reyndar eyða meiri tíma í það. Þetta er rosalega skemmtilegt, gaman að kynnast nýjum aðferðum og svona. Núna er ég tildæmis að blanda tveim listaverkum saman í eitt, Ópið og Fæðing Venusar. Ég birti kannski niðurstöðurnar hérna seinna ef þetta kemur vel út.

Á laugardaginn kemur er Valentínusardagurinn. Búðirnar hérna missa sig algjörlega yfir öllu sem er að gerast hverju sinni, halloween, thanksgiving, christmas og nú valentínusardaguirnn. Það er sama hvar maður fer en þar má sjá rósir búnar til úr súkkulaði, risa blómvendi, endalaust af súkkulaði í hjartakössum með svona klisju frasa framan á eins og t.d. sá ég einn með bíflugu framan á og þar stóð; Beeeeee My Valentine! Þetta er reyndar mjög krúttlegt og það er gaman að sjá hvað fólk gerir mikið mál úr þessu. Reyndar er maðurinn minn ekki hjá mér þessa stundina þannig að ég ætla bara að skemmta mér með vinkonum mínum sem eru ekki að fara á heitt deit. Talandi um manninn minn. Tommi er á leiðinni til mín eftir 15 daga núna og ég get bara ekki beðið! Það verður æðislegt.

Þetta er svona það helsta sem er búið að ganga á hingað til. Búið að vera rosa gaman. Ég ætla að reyna að skella mér snemma í háttinn svona einu sinni þar sem að það eru lyftingar í fyrramálið. Vonandi hafið þið það gott elskurnar.

Ástarkveðjur,
Þórdís

Komin Aftur Út á Nýju Ári

Monday, 19. January 2009

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu! nú er ég byrjuð að blogga á ný eftir æðislegt frí.

Nú er að verða vika síðan ég kom aftur í útlöndin. Það er dáldið skrítið að vera komin út aftur eftir alveg æðisegan mánuð heima á klakanum. Það var ansi mikið að gera hjá mér verð ég að segja en alveg frábært að hitta alla aftur!

Ferðalagið gekk alveg ágætlega. Flugið til Orlando tók 8 klukkutíma og 15 mínútur sem er reyndar alveg óvenju langt en þegar við lentum loksins tók mamma hennar Jamie á móti okkur. Hún skutlaðist með okkur heim til sín sem var rúmar 40 mín í burtu en þá var komið að því að skipta um bíl. Erin O. og Jessy voru svo yndislegar að koma og sækja okkur alla leið frá Savannah (sem eru 8 klst fram og tilbaka). Bróðir Bjargar var að ferðast með okkur þannig að nú var spurningin hvernig við áttum að koma öllum ferðatöskunum fyrir í litla bílinn. Jújú við fundum nú laust á því. Björg og bróðir hennar sátu með eina tösku í fanginu og svo var annarri skellt í fótaplássið mitt. Ég er náttla svo lítil…. þannig að ef þið ímyndið ykkur stafinn V og í framhaldi af því að neðsti punktur stafsins sér rassinn á mér, þá getið þið nokkurn veginn séð hvernig ég sat í fjórar klukkustundir á leiðinni heimm….. Æðislegt! hehe

Eftir að ég kom á campuss er ég aðalega bara búin að vera að koma mér fyrir og redda mér tímum alveg í síðasta lagi. Eftir að hafa verið að brasa í því er ég að taka; Drawing 1, 2-D design, Biology 2, English 2 og Spænsku. Ég er ansi spent fyrir þessari önn þar sem að ég er að læra mikið nýtt og öðruvísi.

Á föstudaginn fór ég með Björgu og bróðir hennar í 80’s partý. En við kynntumst tveimur íslendingum sem búa í miðbæ Savannah í gegnum bróðir hennar. Þau heita Rebekka og Ellert og eru að læra arkitektúr. Við fórum semsagt heim til þeirra, fórum að leita að 80’s fylgihlutum og fórum svo út að borða. Eftir það drifum við okkur aftur heim til þeirra til að dressa okkur flott upp og hita upp fyrir kvöldið. Stuttu seinna komu vinkonur Rebekku og Ásgeir sem er einmitt líka í Armstrong. Þetta var alveg rosa skemmtilegt kvöld og gaman að vera með svona mörgum Íslendingum. Við héldum svo niður í bæ á stað þar sem að 80’s partýið var haldið. Þar var mikið af fólki og mikið af fjöri!

Hér erum við Björg, þvílíkt að púlla 80’s stylinn!

Hér er ég með Chelsea, vinkonu Rebekku, en hún var svo yndisleg að gera hárið á okkur öllum.

Ég ætla svo að skella inn fleiri myndum sem fyrst :)

Það reyndist vera svo skemmtilegt hjá okkur Íslendingunum að við ákváðum að fara alla leið daginn eftir. En þá hittumst við öll aftur en í þetta skiptið var 100% íslendinga mæting. En Jón Grétar, síðasti íslendingurinn, er búinn að vera að læra arkitektúr hér í 4 ár minnir mig. Við hittumst öll ásamt 2 vinum hans, fengum okkur gott að borða og fórum svo heim til hans að spjalla og svona. Ögn rólegra kvöld en föstudagskvöldið en við skelltum okkur einmitt aðeins á staðina niðrí bæ sem var rosa gaman. Kynntist tveimur ungum sjóliðum og við fórum í pílukast. Ég var nú ekki alveg edrú en ég hef aldrei nokkurn tíman verið jafn góð í pílukasti! rústaði þessu algjörlega.

Ég fór að kaupa alls konar dót sem ég þarf fyrir teikningu og hönnun í gær. Hrikalega er þetta dýrt, eða, allavegana þegar þetta safnast saman en ég á held ég bara hálfa búðina núna. Ekkert smá mikið sem þarf til að yðka þetta en ég er spennt fyrir að prófa allt nýja dótið og vonandi læra eitthvað af þessu.

Annars er ég bara búin að vera í algjöru leti í dag. Hef lítið gert af mér annað en að sofa, horfa og sjónvarpið og skoða gamlar myndir. Jú reyndar eldaði ég smá pasta rétt. Var að prufa eitthvað nýtt, pasta með steiktum eggjum, skinku og grænum (löngum) baunum. Koma alveg ágætlega út og með réttum kryddum reyndist þetta nokkuð gott bara.

Svona alveg í lokin vil ég segja frá því að litla frænka mín hún Camilla var 6 ára þann 15. jan og hún sendi mér alveg æðislegar kveðjur þar sem að ég komst ekki í afmælið hennar. En hún hélt upp á afmælið sitt í dag og Tommi var svo yndislegar að taka upp smá skilaboð frá henni. Hér er svo mynd af dömunni.

Þessi var tekin fyrir rúmum 2 árum síðan, rosa flott í Barcelona búningnum sínum :)

Ég hef þetta ekki lengra í bili, en vonandi hafið þið það öll gott. Lov jú!

Ástarkveðjur,
Þórdís

I’ll be Home for Christmas

Saturday, 13. December 2008

Ég sit hér uppí rúmi á föstudagsnóttu (klukkan er orðin 3, þið eruð semsagt að vakna) heima hjá Kristin í Flórída, hún var svo elskuleg að skutla okkur á flugvöllinn. Ég á mjög erfitt með að fara að sofa því ég er allt of spennt fyrir því að fara loksins heim. Á morgun munum við vakna snemma, skella okkur í outlet mall og svo er það bara flugvöllurinn og heim á klakann!

Ég tók síðasta prófið mitt á fimmtudaginn, en annars tók ég bara tvö próf. Mér gekk vel í báðum sem er alveg frábært, en í hinum fögunum voru það bara ritgerðir og kaflapróf. Ég hef venjulega alltaf tekið 5 lokapróf á önn þannig að þetta er bara ágætis tilbreyting.

Vinur minn Courtland náði að plata mig og Björgu með sér í jólapartý sem var í Statesboro í gær. Það var alveg rosalega gaman. Fórum á einn bar þar sem að var spiluð mikil teknó tónlist eða “evrópsk tónlist” eins og kanar vilja meina, hehe.

Hér erum við orðin sæt og fín á leið á ballið.

Ég ætla ekki að hafa þetta langt í þetta skiptið, en ég ætla að enda þetta með mynda af okkur herbergisfélugunum. Það er búið að vera furðu mikið fjör á okkur undanfarnar vikur… segi ykkur frá því þegar ég kem heim…

Erin H., Davi, Björg og Ég… mikið stuð á okkur!

Vonandi hafið þið það gott elskurnar, hlakka til að sá ykkur!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Gotta Love Thanksgiving

Sunday, 30. November 2008

Nú er enn ein vikan liðin og viti menn, bara 15 dagar í að ég komi heim á klakann aftur. Ég verð að viðurkenna það að ég er komin í smá jólaskap. Jú vissulega er enginn snjór úti hjá mér og örfáir búnir að tendra á jólaljósum hjá sér, en um leið og ég stíg inn í verslunarmiðstöðvarnar þar sem að jólaland og jólatónlist blasir við mér þá er bara ekki annað hægt en að raula aðeins með og leyfa jólunum að taka við.

Það hefur fátt gerst síðan ég bloggaði síðast en hins vegar varð seinasta vika mun meira spennandi en vikan þar áður og nú hef ég loksins ástæðu til að blogga. Svo gerðist líka dáldið mjög slæmt en myndavélin mín bilaði. Þvílík sorg og ég er enn að gráta þetta en ég ætla að reyna að finna einhverjar myndir af netinu.

Stelpurnar í fóboltaliðinu hafa verið að skipuleggja grímubúninga partý frá því að tímabilinu lauk og svo var það loksins haldið laugardaginn 22. Nóv. Þemaið var teiknimyndafígúrur og ofurhetjur. Ég og Björg tókum okkur til og fórum sem Tommi og Jenni og ég var að sjálfsögðu Jenni. Þetta var alveg rosalega gaman, kynntist mikið af skemmtilegu fólki. Meðal annars kynntist ég einum breskum gaur sem vill halda því fram að hann þekki Wayne Rooney, hmm…. er það kannski bara góð pick-up lína?? En þetta var mjög vel heppnað kvöld og í fyrsta skiptið sem við stelpurnar skemmtum okkur saman.

Hér er ég og Björg sem Tommi og Jenni, við bjuggum okkur til búningana sjálfar, ekki duglegar? hehe.


Hér er ég með Kristin og Jamie, betur þekktar sem Ghostbusters!


Hér er svo liðið saman komið, alveg flottastar!

Þakkargjörðarhátíðin gekk loksins í garð og nú var sko ástæða til að fagna. Kristin Burton, ein stelpa í liðinu mínu, bauð mér og Björgu heim til sín um hátíðina og héldum við þangað á þriðjudaginn. Hún býr í Ocala, Florida, flottum bæ sem ég vil endilega fara aftur til í framtíðinni. Þegar við vorum ný komin í bæinn keyrðum við framhjá húsi John Travolta og guð minn góður hvað ég var að missa mig (ég er smá mikið fan). Það var nú ekki mikið sem við sáum en þetta er húsið hans með flugvellinum í garðinum, ég bað Kristin um að stoppa fyrir utan hliðið í bakaleiðinni svo ég gæti tekið nokkrar myndir á símann minn…. stokker? Ehemm… hehe. En annars tókum við því bara rólega heima hjá henni, spiluðum Monopoli og Party & CO og svo dekruðu foreldrar hennar okkur með gómsætum mat. Á sjálfri þakkargjörðinni var kvöldmaturinn kl. 17.00 en það er hefð að borða kvöldmatinn svona snemma. Við fengum gómsætan kalkún í matinn og kartöflustöppu, sósu, baunir í sósu, cornbread og margt fleira í meðlæti. Við hlustuðum svo á jólalög á meðan við borðuðum, mjög kósý. Þetta var alveg frábært og góð tilbreyting frá núðlunum sem ég fæ nú í hvert mál hér á campus. Þegar við höfðum lokið við kvöldmatinn spiluðum við smá og loks skelltum við okkur í bíó á jólamyndina “Four Christmases”, alveg æðislega fyndin mynd og mæli með henni. Við spiluðum svo meira þegar við komum heim, þið sem þekkið mig vitið hvað ég hef elskað það, hehe. Ég er því miður ekki með neinar myndir frá þessari dásamlegri viku nema þær sem ég tók á símann minn og ég get ekki sett þær inn á tölvuna…

Við komum svo heim á föstudaginn en það er nánast enginn á campus um helgina nema útlendingarnir þannig að það er algjör friður sem er ágætt. Ég og Björg skelltum okkur í jólagjafaleiðangur í gær (laugardag) og nýttum okkur útsölurnar sem ljúka á mánudaginn. Við höfum engan bíl þannig að við hertum okkur upp og tókum strætó í fyrsta skiptið! Þetta var nú ekki erfitt en þegar við höfðum eytt 10 klukkustundum í því að versla og það var orðið dimmt úti þorðum við ekki að ganga úti með alla pokana okkar þannig að við hringdum í eina vin okkar sem við vissum að væri enn í Savannah og báðum hann að sækja okkur, hehe. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi að versla á einum degi enda var ég að drepast í fótunum en jólagjafakaupunum er lokið og nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þeim sem er frábært.

Nú styttist í að prófin byrji og nú er ég á fullu að skila lokaverkefnum þannig að það verður nóg að gera hjá mér á næstu dögum sem fær tímann vonandi til að líða hraðar. Hlakka til að koma heim! En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vonandi hafði þið það gott elskurnar og gangi ykkur sem eruð í prófum rosa vel!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Its Been a Long Ride

Monday, 10. November 2008

Vikan sem leið var heldur betur umfangsmikil. Halloween, úrslitin í fótboltanum, ströndin og síðast en ekki síst fyrsta djammið.

Á Halloween fór ég með nokkrum stelpum úr boltanum og vinum okkar í “Draugaskóg” eða “Haunted Forrest”. Við urðum að bíða í röð í einn og hálfan tíma því eftirsóknin var það mikil. Það er farið að kólna heldur betur í veðri þannig að ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta yrði þess virði að bíða úti í þessum kulda. Svarið var já. Þegar það kom loksins að okkur fórum við inn í hóp 7 í einu. Það tók við okkur leiðsögumaður sem átti eftir að fylgja okkur í gegnum skóginn. Inni í skóginum voru afturgöngur, raðmorðingjar með vélsagir, skuggalegir trúðar og ýmsar verur úr hryllingsmyndum. Á meðal þeirra var stelpan úr The Ring að klifra upp úr brunni, þetta var hræðilegt því eins og þið flest vitið er ég alveg hrikalega myrkfælin. Ég hélt eins fast og ég gat í Björgu og ýtti henni fram og til baka til að forðast liðið sem elti okkur. Ég öskraði svo mikið að ég varð hás og ég verð það eiginlega aldrei…7-9-13. Ég skemmti mér alveg konunglega.

Hér erum við stelpurnar í liðinu að bíða í röðinni fyrir utan skóginn.

Hér er leiðsögumaðurinn okkar, mjög svo spooky, og Alex kærasti Emily.

Þegar við vorum búin að ganga í gegnum skóginn skelltum við okkur á Denny’s. Við fengum okkur flest öll svona týpiskan amerískan morgunmat; hrærð egg, bacon, pulsu, biscuit og að sjálfsögðu pönnukökur. Þetta var alveg rosalega gómsætt en þegar við höfðum lokið því að borða var klukkan orðin 1 að nóttu. Við fórum heim og skelltum Madagaskar í tækið til að róa okkur aðeins niður. Ég var orðin alveg uppgefin og fór upp í rúm þegar klukkan var orðin rúmlega 3. Þegar að ég hafði sofið í 15 mínútur fór brunakerfið í gang. Allir urðu að yfirgefa bygginguna þannig að fyrir utan stóðu tugir háskólanema á náttfötunum að krókna úr kulda. 20 mínútum og 4 slökkviliðsbílum seinna fengum við að fara inn aftur þar sem að það var enginn bruni.


Hérna erum við á Denny’s að bíða eftir matnum okkar.

Hér er einn af slökkviliðsbílunum fyrir utan íbúðina.

Bandaríkjamenn fagna ekki Halloween á einum degi heldur nokkra daga fyrir og eftir líka. Davi herbergisfélaginn minn var svo elskuleg að elda handa okkur kvöldmat í tilefni hátíðarinnar. Hún eldaði Chilli og pulsur með brauði. Þetta var alveg hrikalega gott og það er klárt mál að hún sé kokkurinn á heimilinu. Körfuboltastrákarnir fyrir neðan okkur komu líka og við horfðum svo á hryllingsmyndir saman.

Hér er Davi að leggja loka hönd á matinn.

Það eru þrír Íslendingar á campus; ég, Björg og Ásgeir. Í síðustu viku var International Week þannig að við vorum beðin um að kynna Ísland. Á sunnudaginn áttu allir útlendingarnir að vera með plaggat með myndum og upplýsingum af heimalandinu og svo föt eða mat sem fæst aðeins þar. Við komum okkur saman og Ásgeir bjó til íslenskar pönnukökur og ég og Björg bjuggum til plaggatið. Ég klæddi mig svo í ullarvestið mitt sem Ásta frænka gerði handa mér. Fólkinu leist alveg rosalega vel á þetta hjá okkur og sýndi Íslandi gríðarlegan áhuga. Við skoðuðum líka bása hjá hinum krökkunum og þetta var alveg rosalega flott hjá þeim.


Björg, Ásgeir og ég við borðið okkar.

Hér erum við að fræða fólk um Ísland og bjóða upp á pönsur.

Hér er ég og Marina frá Belgíu. Það sést svo í Johanna frá Svíþjóð þarna á bakvið.

Hér er Björg við Japanska borðið.

Fótboltinn hefur gengið svona upp og niður út tímabilið. Við höfum jafnað frekar marga leiki og ekki unnið nokkra leiki sem við áttum að vinna. Fyrir vikið fórum við í umspilið þannig að við urðum að keppa á móti erfiðum andstæðingum. 8-liða úrslitin voru á móti North-Georgia sem við töpuðum á móti á Senior Day. Við fórum norður og unnum þær 2-0. Leikurinn fór fram uppi í fjöllunum þar sem skólinn var og umhverfið þar er alveg rosalega fallegt. Þar sem að við unnum leikin vorum við einu skrefi nær að komast í NCAA keppnina en aðeins bestu liðin í riðlinum komast þangað.

Hér erum við að skoða aðstæðurnar á vellinum í North-Georgia.

Hér erum við allar sáttar eftir að hafa sigrað North-Georgia.

Við kepptum undanúrslitaleikinn á móti Columbus State en það er erkióvinur okkar. Liðið mitt hefur tapað á móti þeim í úrslitum síðast liðin ár og leikirnir hafa alltaf endað í framlengingu eða vítaspyrnukeppni. Við spiluðum rosalega vel á móti þeim, við spiluðum 4-3-3 og ég var látin spila frammi vinstra megin. Við áttum nokkur góð skot á mark en vorum alveg hrikalega óheppnar. Leikurinn fór í framlengingu og þegar að 30 sekúndur eru eftir af framlengingunni skora þær úr horni. Þetta var alveg ótrúlega sorglegt að sagan hafi endurtekið sig enn einu sinni og sérstaklega afþví að stelpurnar á síðasta ári sem stofnuðu liðið upphaflega fá ekki að spila fótbolta aftur. Leiðinlegt að enda feril sinn svona. Úr því að við komumst ekki í NCAA keppnina er tímabilinu lokið. Tímabilið leið alveg rosalega hratt en þetta var alveg æðislega gaman.

Við komum aftur heim laugardagsmorgun. Við busarnir vildum ekki vera í algjöru þunglyndi yfir þessu þannig að við notuðum tækifærið á meðan veðrið var svona fallegt og skelltum okkur á ströndina. Já ég veit, það var 8. Nóvember og við fórum á ströndina, æðislegt! Við komum við í Target á leðinni á ströndina og við fengum okkur allar glæ ný sólgleraugu en það er náttla ekki hægt að fara á ströndina án þeirra, neinei. Þegar við komum loksins á ströndina hlupum við út í sjó, tókum nokkrar myndir og sóluðum okkur. Takið endilega eftir “bóndabrúnkunni” minni en ég hef bara fengið einhverja brúnku á meðan ég spilaði fótbolta þannig að andlitið, hnén og handleggirnir eru brúnir en já, ekkert annað. Gaman að því. Á leiðinni heim vorum við svo stoppaðar af löggunni og Jessy fékk sekt fyrir hraðakstur. Hún keyrði bara rétt 10 km yfir hámarskhraða þannig að löggan er heldur betur ströng hérna.

Jessy, Björg og Erin. Hér erum við ný komnar á ströndina og stelpurnar eru strax byrjaðar að skvetta.

Hér er Davi, ég, Björg og Erin. Ég fékk krókódílinn hennar jessy lánaðan, Flottust! Sjáið hvað himininn og tunglið er fallegt í bakgrunni.

Hér er Jessy og sektin hennar.

Á meðan við lágum og vorum að sóla okkur kom til okkar stelpa. Hún er rúmlega tvítug myndi ég giska og hún heldur á biblíu sé ég og er með kross um hálsinn og í Billabong bol. Hún sest hjá okkur og spyr hvort hún megi deila með okkur reynslusögu sinni. Hún sagði að guð hefði sagt henni að koma og tala við okkur og allt í lagi með það við hlustuðum á hana. Það kom í ljós að hún hafi verið í miklu rugli með áfengi, dóp og stráka og á meðan var hún undir mikilli pressu hjá foreldrum sínum að standa sig vel í skóla og fara reglulega í kirkju. Hún trúði aldrei á guð þangað til að einn dag var eins og að guð hefði snert hana. Hún hætti öllu rugli og fór sína eigin leið. Hún sagði að við hefðum minnt hana á fortíð hennar… úbs… og vildi að við vissum að ef við ættum eitthvað erfitt væri jesús kristur svarið. Við þökkuðum henni fyrir að deila þessu með okkur og kvöddum hana. Mér fannst þetta dáldið áhugavert og vildi deila þessu með ykkur afþví að ég held þetta myndi aldrei gerast heima á Íslandi.

Um kvöldið var fyrsta djammið síðan ég kom hingað út. Þar sem að tímabilinu er lokið fengum við smá útrás. Við busarnir ákváðum að vera bara heima allt kvöldið en dressuðum okkur nú samt aðeins upp og svona. Körfuboltastrákarnir og Jake og Will komu í heimsókn og fleiri og áður en við vissum af var íbúðin full af fólki. Þetta var alveg æðislega gaman, við spiluðum drykkjuleiki, hlustuðum á tónlist og spjölluðum saman. Ég fékk líka loksins að nota staupglasið mitt sem ég keypti fyrstu vikuna mína hérna, “Pirate Shot Glass”… aðeins stærra en venjuleg staupglös…

Hér er ég með sjóræningja skotglasið mitt. Ákvað að byrja kvöldið með stæl.

Davi, ég og Björg tilbúnar fyrir kvöldið.

Jessy, ég, Erin, Björg og Davi að spila Circle of Death.

Ég og Jessy, alveg sætastar!

Chris og Zach körfuboltastrákar með mér og Jessy. Enn og aftur að brillera á 10 sekúnda stillingunni!

Það verður skrítið að hafa ekki æfingar á hverjum degi eins og venjulega en nú get ég nýtt tímann aðeins í námið. Það styttist í þakkargjörðarhátíðina, prófin og heimkomuna! Get ekki beðið að fá jólaöl, kókómjólk, lambalæri og já bara íslenskan mat. Hlakka til að hitta ykkur öll, bara fimm vikur eftir. Vonandi hafið þið það gott elskurnar!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Prófum Loksins Lokið!

Thursday, 30. October 2008

Þegar ég sá kommentin frá Katrínu og Elnu fattaði ég að ég hef ekkert deilt með ykkur hvað ég er að gera á vellinum hérna úti þannig að best að segja ykkur aðeins frá því. Ég hef verið að spila á hægri og vinstri kanti til skiptis og svo hefur það komið fyrir að ég spili center þegar við spilum 4-3-3. Liðið mitt er í 5 sæti sem stendur en það getur breyst á laugardaginn þegar við keppum seinasta áætlaða leikinn okkar. Þegar þeim leik er lokið förum við í “playoffs” þar sem að 8 efstu liðin keppa til úrslita. Þetta er allt voða spennandi og ég læt ykkur vita hvernig fer.

Vikan sem leið hefur verið heldur róleg. Ég get ekki deilt með ykkur mikið af myndum afþví að myndavélin varð batteríslaus og er ég að hlaða hana fyrst núna.


Ég sit þarna hægra megin við sjónarpið, hausinn á Kelly er reyndar aðeins fyrir.

Vinstra megin er gengið inn í herbergið. Það er stórt pappaspjald af Jack Sparrow í andyrinu fyrir aftan Jamie, sést dáldið illa í það. Mér fannst ég svo sannarlega velkomin þegar ég sá það í fyrsta skiptið, hehe. Myndavélin varð batteríslaus eftir þessa mynd.

Það var leikdagur seinasta laugardag. Þetta var líka Seniro Day þar sem að stelpurnar á loka árinu sínu eru heiðraðar. Þetta var rosa flott, þær gengu inn á völlin og leiddu mömmu sína og pabba og tóku á móti viðurkenningu. Ein af stelpunum leiddi ömmu sína, það var alveg rosalega sætt. Við kepptum á móti North Georgia á laugardaginn en töpuðum því miður 2-0. Þetta var hrikalega slappur leikur að öllu leyti en ég reyndi að láta hann ekki fara í taugarnar á mér um kvöldið afþvi að ég, Bjög og vinir okkar Blake og Dawda vorum búin að skipuleggja skemmtikvöld.
Við byrjuðum á að skella okkur á Starbucks og ég fékk mér White Chocolate Moccha eins og alltaf, alveg hrikalega gott kaffi! Þegar við vourm búin að spjalla þar í góðan tíma um myndarlegt frægt fólk, kvikmyndir, lífið og tilveruna drifum við okkur á video leiguna. Það tók okkur örugglega klukkutíma að velja eina mynd og varð Indiana Jones fyrir valinu. Við horfðum á myndina heima hjá foreldrum Blake og ég verð eiginlega að segja ykkur frá einu herberginu þarna, það var ást við fyrstu sín! Inni voru tveir sófar, tveir lazy-boy stólar, risa plasma sjónvarp, sjálfsali með fanta, mountain dew, diet coke og dr. Pepper, ísskápur með kóki, bór og malti, klakavél og ég veit bara ekki hvað. Herbergið var allt gert í stíl eftir uppáhalds “fótbolta” liðinu þeirra Georgia Bulldogs og svo voru ýmis verðlaun og myndir af börnunum á veggjunum. Ég lærði eitt eftir þessa heimsókn. Þetta er skylduherbergi á hvert heimili! Þegar við komum svo heim fóru allir niður til körfuboltastrákanna þar sem að fólk var að sötra bjór. Það gætu komið myndir af mér á Facebook þar sem að ég er að þykjast vera rappari… vil bara vara ykkur við fyrirfram…

Ég er búin að taka þrjú próf síðan ég bloggaði síðast, tvö erfið þannig að ég er búin að vera að læra mest alla daga. Ég var að koma úr líffræðiprófi rétt í þessu, gekk alveg allt í lagi held ég… vona ég. Mjög fegin að það eru engin próf á næstunni.

Ég lét framkalla myndir fyrir nokkru síðan sem ég hengdi svo upp á vegginn hjá mér. Kom alveg ágætlega út held ég, en herbergið er mun heimilislegra með myndir að heiman.

Þetta er allavegana byrjunin, ætla að reyna að framkalla fleiri myndir fljótlega.

Vel búið um rúmið og svona eins og alltaf… ;)

Á morgun er Halloween. Ég geri örugglega ekki neitt á morgun afþví að það er leikur á laugardaginn en við fótboltastelpurnar erum búnar að finna þema fyrir Halloween partýið okkar sem verður eftir tímabilið. Þemaið er “Cartoon Hoes and Superhero Bros,” sem þýðir að allar stelpurnar eiga að vera teiknimynda karakter… hmm…. einhverjar góðar hugmyndir um hvað ég get verið???

Ég hef þetta ekki lengra í bili en vonandi hafið þið það öll gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís