Gotta Love Thanksgiving

Sunday, 30. November 2008

Nú er enn ein vikan liðin og viti menn, bara 15 dagar í að ég komi heim á klakann aftur. Ég verð að viðurkenna það að ég er komin í smá jólaskap. Jú vissulega er enginn snjór úti hjá mér og örfáir búnir að tendra á jólaljósum hjá sér, en um leið og ég stíg inn í verslunarmiðstöðvarnar þar sem að jólaland og jólatónlist blasir við mér þá er bara ekki annað hægt en að raula aðeins með og leyfa jólunum að taka við.

Það hefur fátt gerst síðan ég bloggaði síðast en hins vegar varð seinasta vika mun meira spennandi en vikan þar áður og nú hef ég loksins ástæðu til að blogga. Svo gerðist líka dáldið mjög slæmt en myndavélin mín bilaði. Þvílík sorg og ég er enn að gráta þetta en ég ætla að reyna að finna einhverjar myndir af netinu.

Stelpurnar í fóboltaliðinu hafa verið að skipuleggja grímubúninga partý frá því að tímabilinu lauk og svo var það loksins haldið laugardaginn 22. Nóv. Þemaið var teiknimyndafígúrur og ofurhetjur. Ég og Björg tókum okkur til og fórum sem Tommi og Jenni og ég var að sjálfsögðu Jenni. Þetta var alveg rosalega gaman, kynntist mikið af skemmtilegu fólki. Meðal annars kynntist ég einum breskum gaur sem vill halda því fram að hann þekki Wayne Rooney, hmm…. er það kannski bara góð pick-up lína?? En þetta var mjög vel heppnað kvöld og í fyrsta skiptið sem við stelpurnar skemmtum okkur saman.

Hér er ég og Björg sem Tommi og Jenni, við bjuggum okkur til búningana sjálfar, ekki duglegar? hehe.


Hér er ég með Kristin og Jamie, betur þekktar sem Ghostbusters!


Hér er svo liðið saman komið, alveg flottastar!

Þakkargjörðarhátíðin gekk loksins í garð og nú var sko ástæða til að fagna. Kristin Burton, ein stelpa í liðinu mínu, bauð mér og Björgu heim til sín um hátíðina og héldum við þangað á þriðjudaginn. Hún býr í Ocala, Florida, flottum bæ sem ég vil endilega fara aftur til í framtíðinni. Þegar við vorum ný komin í bæinn keyrðum við framhjá húsi John Travolta og guð minn góður hvað ég var að missa mig (ég er smá mikið fan). Það var nú ekki mikið sem við sáum en þetta er húsið hans með flugvellinum í garðinum, ég bað Kristin um að stoppa fyrir utan hliðið í bakaleiðinni svo ég gæti tekið nokkrar myndir á símann minn…. stokker? Ehemm… hehe. En annars tókum við því bara rólega heima hjá henni, spiluðum Monopoli og Party & CO og svo dekruðu foreldrar hennar okkur með gómsætum mat. Á sjálfri þakkargjörðinni var kvöldmaturinn kl. 17.00 en það er hefð að borða kvöldmatinn svona snemma. Við fengum gómsætan kalkún í matinn og kartöflustöppu, sósu, baunir í sósu, cornbread og margt fleira í meðlæti. Við hlustuðum svo á jólalög á meðan við borðuðum, mjög kósý. Þetta var alveg frábært og góð tilbreyting frá núðlunum sem ég fæ nú í hvert mál hér á campus. Þegar við höfðum lokið við kvöldmatinn spiluðum við smá og loks skelltum við okkur í bíó á jólamyndina “Four Christmases”, alveg æðislega fyndin mynd og mæli með henni. Við spiluðum svo meira þegar við komum heim, þið sem þekkið mig vitið hvað ég hef elskað það, hehe. Ég er því miður ekki með neinar myndir frá þessari dásamlegri viku nema þær sem ég tók á símann minn og ég get ekki sett þær inn á tölvuna…

Við komum svo heim á föstudaginn en það er nánast enginn á campus um helgina nema útlendingarnir þannig að það er algjör friður sem er ágætt. Ég og Björg skelltum okkur í jólagjafaleiðangur í gær (laugardag) og nýttum okkur útsölurnar sem ljúka á mánudaginn. Við höfum engan bíl þannig að við hertum okkur upp og tókum strætó í fyrsta skiptið! Þetta var nú ekki erfitt en þegar við höfðum eytt 10 klukkustundum í því að versla og það var orðið dimmt úti þorðum við ekki að ganga úti með alla pokana okkar þannig að við hringdum í eina vin okkar sem við vissum að væri enn í Savannah og báðum hann að sækja okkur, hehe. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi að versla á einum degi enda var ég að drepast í fótunum en jólagjafakaupunum er lokið og nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þeim sem er frábært.

Nú styttist í að prófin byrji og nú er ég á fullu að skila lokaverkefnum þannig að það verður nóg að gera hjá mér á næstu dögum sem fær tímann vonandi til að líða hraðar. Hlakka til að koma heim! En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vonandi hafði þið það gott elskurnar og gangi ykkur sem eruð í prófum rosa vel!

Ástarkveðjur,
Þórdís

5 Responses to “Gotta Love Thanksgiving”



  1. Linda Says:

    Jæja, á ekki að koma með e-ð svona final blogg fyrir heimferðina!!?? :D VÍÍÍ!! Hlakka til að sjá þig snúlla! :)



  2. Tómas Says:

    (06.12.2008)Ég væri til í að fara í svona smá thanksgiving break fyrir prófin, held það sé algjört möst.



  3. Linda Says:

    (06.12.2008)Gaman gaman! Ég er búin að vera í svona “hvolpafríi” frá öllu fyrstu vikuna í próflestrarfríinu…hmm skynsamlegt, en þetta er bara svona hálfgerð “thanks giving” hjá mér, ætla að hugsa það svona til að reyna að réttlæta þetta kæruleysi í mér ;)

    Annars bara hlakka ég til að heyra í þér snúllan mín! :)

    p.s. það kemst ekkert annað í spilarann hjá mér núna nema jólalög ;)



  4. Lena Says:

    (06.12.2008)á Rhodos hitti ég strák sem reyndi að sannfæra mig um að Peter Schmeichel væri pabbi hans!

    þið eruð sætar sem Tommi og Jenni!

    en 10 tímar!! ég hefði dáið!



  5. Dagbjört Says:

    (06.12.2008)Finnst nú að þú hefðir átt að vera Tommi, til heiðurs Tomma?
    Hlakka til að fá þig heim!!

Leave a Reply