Komin Aftur Út á Nýju Ári
Monday, 19. January 2009
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu! nú er ég byrjuð að blogga á ný eftir æðislegt frí.
Nú er að verða vika síðan ég kom aftur í útlöndin. Það er dáldið skrítið að vera komin út aftur eftir alveg æðisegan mánuð heima á klakanum. Það var ansi mikið að gera hjá mér verð ég að segja en alveg frábært að hitta alla aftur!
Ferðalagið gekk alveg ágætlega. Flugið til Orlando tók 8 klukkutíma og 15 mínútur sem er reyndar alveg óvenju langt en þegar við lentum loksins tók mamma hennar Jamie á móti okkur. Hún skutlaðist með okkur heim til sín sem var rúmar 40 mín í burtu en þá var komið að því að skipta um bíl. Erin O. og Jessy voru svo yndislegar að koma og sækja okkur alla leið frá Savannah (sem eru 8 klst fram og tilbaka). Bróðir Bjargar var að ferðast með okkur þannig að nú var spurningin hvernig við áttum að koma öllum ferðatöskunum fyrir í litla bílinn. Jújú við fundum nú laust á því. Björg og bróðir hennar sátu með eina tösku í fanginu og svo var annarri skellt í fótaplássið mitt. Ég er náttla svo lítil…. þannig að ef þið ímyndið ykkur stafinn V og í framhaldi af því að neðsti punktur stafsins sér rassinn á mér, þá getið þið nokkurn veginn séð hvernig ég sat í fjórar klukkustundir á leiðinni heimm….. Æðislegt! hehe
Eftir að ég kom á campuss er ég aðalega bara búin að vera að koma mér fyrir og redda mér tímum alveg í síðasta lagi. Eftir að hafa verið að brasa í því er ég að taka; Drawing 1, 2-D design, Biology 2, English 2 og Spænsku. Ég er ansi spent fyrir þessari önn þar sem að ég er að læra mikið nýtt og öðruvísi.
Á föstudaginn fór ég með Björgu og bróðir hennar í 80’s partý. En við kynntumst tveimur íslendingum sem búa í miðbæ Savannah í gegnum bróðir hennar. Þau heita Rebekka og Ellert og eru að læra arkitektúr. Við fórum semsagt heim til þeirra, fórum að leita að 80’s fylgihlutum og fórum svo út að borða. Eftir það drifum við okkur aftur heim til þeirra til að dressa okkur flott upp og hita upp fyrir kvöldið. Stuttu seinna komu vinkonur Rebekku og Ásgeir sem er einmitt líka í Armstrong. Þetta var alveg rosa skemmtilegt kvöld og gaman að vera með svona mörgum Íslendingum. Við héldum svo niður í bæ á stað þar sem að 80’s partýið var haldið. Þar var mikið af fólki og mikið af fjöri!

Hér erum við Björg, þvílíkt að púlla 80’s stylinn!

Hér er ég með Chelsea, vinkonu Rebekku, en hún var svo yndisleg að gera hárið á okkur öllum.
Ég ætla svo að skella inn fleiri myndum sem fyrst
Það reyndist vera svo skemmtilegt hjá okkur Íslendingunum að við ákváðum að fara alla leið daginn eftir. En þá hittumst við öll aftur en í þetta skiptið var 100% íslendinga mæting. En Jón Grétar, síðasti íslendingurinn, er búinn að vera að læra arkitektúr hér í 4 ár minnir mig. Við hittumst öll ásamt 2 vinum hans, fengum okkur gott að borða og fórum svo heim til hans að spjalla og svona. Ögn rólegra kvöld en föstudagskvöldið en við skelltum okkur einmitt aðeins á staðina niðrí bæ sem var rosa gaman. Kynntist tveimur ungum sjóliðum og við fórum í pílukast. Ég var nú ekki alveg edrú en ég hef aldrei nokkurn tíman verið jafn góð í pílukasti! rústaði þessu algjörlega.
Ég fór að kaupa alls konar dót sem ég þarf fyrir teikningu og hönnun í gær. Hrikalega er þetta dýrt, eða, allavegana þegar þetta safnast saman en ég á held ég bara hálfa búðina núna. Ekkert smá mikið sem þarf til að yðka þetta en ég er spennt fyrir að prófa allt nýja dótið og vonandi læra eitthvað af þessu.
Annars er ég bara búin að vera í algjöru leti í dag. Hef lítið gert af mér annað en að sofa, horfa og sjónvarpið og skoða gamlar myndir. Jú reyndar eldaði ég smá pasta rétt. Var að prufa eitthvað nýtt, pasta með steiktum eggjum, skinku og grænum (löngum) baunum. Koma alveg ágætlega út og með réttum kryddum reyndist þetta nokkuð gott bara.
Svona alveg í lokin vil ég segja frá því að litla frænka mín hún Camilla var 6 ára þann 15. jan og hún sendi mér alveg æðislegar kveðjur þar sem að ég komst ekki í afmælið hennar. En hún hélt upp á afmælið sitt í dag og Tommi var svo yndislegar að taka upp smá skilaboð frá henni. Hér er svo mynd af dömunni.

Þessi var tekin fyrir rúmum 2 árum síðan, rosa flott í Barcelona búningnum sínum
Ég hef þetta ekki lengra í bili, en vonandi hafið þið það öll gott. Lov jú!
Ástarkveðjur,
Þórdís
Tómas Guðmundsson Says:
Skemmtilegt outfitt, ég er að fíla það.
Lena Says:
ég fíla það meira
Linda Rós Says:
Já já það er ágætt…
híhí
Þú tekur þig vel út í 80’s dressinu
Aldís Says:
Hæ sætust. Þið eruð rosa flottar svona 80 tís.:) Gaman að lesa bloggið, Love mamma.
Þórdís Says:
Takk fyrir það öllsömul ;* Ég var alveg að fíla þetta, hehe.
Katrín Says:
Hæ hó
Linda Rós Says:
Æji, mig langar í nýtt blogg og myndasíðu með öllum myndum
Dagbjört Says:
mig líka
Lena Says:
segðu eitthvað fyndið
Björg Magnea Says:
Um að gera að setja ljótustu mynd ever af mér!! Diíi Thanks;)
Dagbjört Says:
bíð spennt eftir nýju bloggi!:)
Þórdís Says:
Já það er heldur betur kominn tími á blogg, ætlaði að gera það í kvöld en ég náði því því miður ekki. Lofa samt að það verði komið nýtt á morgun! Lov Jú! ;*
Linda Rós Says:
tikktakktikktakk…