Here it Comes

Friday, 13. February 2009

Sæl öll sömul. Ég vil biðja á að þakka ykkur fyrir að vera svona þolinmóð en ég hef klárlega ekki verið að standa mig í að blogga. Nú eru liðnar u.þ.b. 3 vikur síðan ég bloggaði síðast og ja, það hefur svona hitt og þetta gerst síðan þá.

Ég tók þá skynsamlegu ákvörðun að hætta í ensku fyrir tveim vikum. Það var kannski ekki það að þetta væri eitthvað erfitt en bara einfaldlega hrikalega leiðinlegt. Ég get ekki sagt að bókmenntir, ljóð og höfundar séu í uppáhaldi hjá mér í íslensku, hvað þá ensku… En nú er ég líka í fríi á föstudögum sem er mesta snilld í heimi. Á föstudögum og mánudögum eru reyndar lyftingar kl. 6.45 að morgni til og það er ekkert sem ég elska heitar! ehemm…. En ég er ennþá aum eftir síðustu lyftingar og á erfitt með að ganga, labba upp tröppur og já, að setjast á klóstið er algjört pain in the legs!

Svona er staðan eftir fyrstu umferð af fitness prófum og helling helling af hlaupum.

Í staðin fyrir KSÍ erum við með samtök sem heita NCAA. Þessi samtök eru frekar kjánaleg að mínu mati og með allt of mikið af reglum. Núna er t.d. undirbúningstímabil og við megum ekki æfa saman sem heilt lið til að byrja með þannig að við verðum að æfa í nokkrum litlum hópum í staðin. Ég er í 3 manna hóp á þriðjudögum (framherjar) og í 4 manna hóp á fimmtudögum. Ég reyni að líta á björtu hliðarnar á þessu fyrirkomulagi, slatti af einkaþjálfun og það er aldrei leiðinlegt.

Ég er byrjuð að vinna aðeins líka á heimaleikjum í körfubolta og hafnarbolta. Selja pulsur, pizzur, hamborgara, popp, nammi og kók. Alls konar hollustuvörur að hætti Bandaríkjamanna. En á sunnudaginn var var ég að vinna á fyrsta hafnarboltaleiknum mínum nema það að ég var ein. Þurfti að grilla, sjá um sjoppuna og selja inn. Mikið rosalega var ég fegin að vera kvk því ef ég gæti ekki gert tvennt í einu veit ég ekki alveg hvar ég væri stödd núna. Ekki hjálpaði það að ég skar mig á putta og það fossblæddi, ég er enn að vona að það hafi ekkert farið í pulsurnar hjá fólkinu…

Ein stelpan í liðinu, Kayley, átti afmæli um daginn og í tilefni þess var haldið surprice partý handa henni. Þetta var alveg rosalega gaman, slatti af fólki sem mætti líka. Þetta var svona týpisk stemning eins og við sjáum í bíómyndunum, ljósin slökkt, allir að sussa á alla og svo þegar aðilinn labbar inn er kveikt á öllu og öskrað SURPRIIIIIICE! Alveg æðislega gaman. Daginn eftir fórum við svo út að borða með afmælisbarninu á skoskan stað en hún er semsagt skoti. Ég fékk mér Guinnes Stew. Það var mjög bragðgott og gaman að prófa eitthvað nýtt.

Hér erum við komnar í gírinn eftir að hafa komið henni vel á óvart.

Hér erum við á Skoska staðnum, Lianne, Kayley, Björg og ég. Þið getið séð skoska fánann á sérvréttunum… mikið rosalega er ég hvít…

Kristin og Jamie komu með okkur líka.

Við höfum skellt okkur niður í bæ allar helgar núna og ég býst við því að fara aftur þessa helgi. Stemningin er ekkert mjög ósvipuð heima, maður hittir mikið af fólki á götunni og staðirnir eru skemmtilegir. Það eru reyndar mikið af evrópskum pubum hérna með trúbadorum sem er aldrei leiðinlegt. Ég hef heyrt alls konar mismunandi picku up línur í gegnum tíðina og sumar hverjar ekki alveg að gera sig. Ég fékk einmitt eina skemmtilega seinustu helgi, verst að ég var edrú og hló bara að greyið stráknum. Hann gekk að mér, horfði í gringum sig og sagði, hvað er allt þetta fólk að gera hérna ég hélt það ætti bara að vera þú og ég í kvöld… jámm, sætt? kjánalegt? hvað finnst ykkur??

Hér er gömul mynd frá 80’s kvöldinu. Ég og Björg vorum einmitt með Rebekku (lengst til hægri), Ellert og Ásgeir seinasta föstudag og stelpurnar komu að sjálfsögðu líka. Það var haldið 70’s kvöld þá líka en ég laggði reyndar ekki í það að dressa mig upp eins og þarna.

Ég er búin að eyða löngum stundum í að teikna þessa dagana og mætti reyndar eyða meiri tíma í það. Þetta er rosalega skemmtilegt, gaman að kynnast nýjum aðferðum og svona. Núna er ég tildæmis að blanda tveim listaverkum saman í eitt, Ópið og Fæðing Venusar. Ég birti kannski niðurstöðurnar hérna seinna ef þetta kemur vel út.

Á laugardaginn kemur er Valentínusardagurinn. Búðirnar hérna missa sig algjörlega yfir öllu sem er að gerast hverju sinni, halloween, thanksgiving, christmas og nú valentínusardaguirnn. Það er sama hvar maður fer en þar má sjá rósir búnar til úr súkkulaði, risa blómvendi, endalaust af súkkulaði í hjartakössum með svona klisju frasa framan á eins og t.d. sá ég einn með bíflugu framan á og þar stóð; Beeeeee My Valentine! Þetta er reyndar mjög krúttlegt og það er gaman að sjá hvað fólk gerir mikið mál úr þessu. Reyndar er maðurinn minn ekki hjá mér þessa stundina þannig að ég ætla bara að skemmta mér með vinkonum mínum sem eru ekki að fara á heitt deit. Talandi um manninn minn. Tommi er á leiðinni til mín eftir 15 daga núna og ég get bara ekki beðið! Það verður æðislegt.

Þetta er svona það helsta sem er búið að ganga á hingað til. Búið að vera rosa gaman. Ég ætla að reyna að skella mér snemma í háttinn svona einu sinni þar sem að það eru lyftingar í fyrramálið. Vonandi hafið þið það gott elskurnar.

Ástarkveðjur,
Þórdís

15 Responses to “Here it Comes”



  1. Tómas Guðmundsson Says:

    Skemmtilegt blogg :) Ekki fæ ég að heyra þessar pikkup línur þegar við tölum saman ;)

    Gaman samt að núna eru bara 14 dagar þangað til að ég fer til konunar minnar.



  2. Lena Says:

    haha góð pikköpp lína, og númer 2 ekki slæmt það!

    og núna eru bara 13 dagar



  3. Linda Rós Says:

    12 dagar!



  4. Dagbjört Says:

    loksins langt og gott blogg :) uuuu…11 dagar! Skype í vikunni?



  5. Tómas Guðmundsson Says:

    verður maður ekki að vera með ? :D 10 dagar



  6. Aldís Says:

    Ég verð bara líka með nú eru bara 8. dagar :) Skemmtilegt blogg og já ástin mín hvít, það er nú bara af þvi að þú ert eiginlega hún mjallhvít hehe funniest home. Love you Mamma



  7. Katrín Says:

    Góður árangur hjá þér Þórdís!

    Grey strákurinn þú hlærð uppí opið geðið á honum :P En hvernig fíla Emerísku vinkonur þínar þessar pikkup-línur, eru þær ekki að digga þetta :O

    7 dagar !



  8. Katrín Says:

    Úps hélt það væri 20. .. ..
    8 dagar!



  9. Þórdís Says:

    6 dagar! vúhú! ;)

    Ég rétt vona að þær kaupi ekki þessar pickup línur haha, en það er nú gaman að þeim :P



  10. GSJ Says:

    5 – dagar! – Hvaða niðurtalning er þetta Þórdís mín – áttu von á einhverju spennandi eftir 5 daga??? Gættu þín á “pick-up línum” annars er mér að mæta! þér til fróðleiks þá er Já-mótið í golfi helgina 26-28 júní rétt hjá Húsafelli.



  11. Elna Says:

    4 dagar .. en eg heppin ad vera su fyrsta sem skrifa thennan fagra dag 23.februar. Gaman ad lesa thessi longu blogg thin og eg hlakka til ad sja fleiri myndir



  12. Tómas Guðmundsson Says:

    ekki á morgun heldur hinn!



  13. Katrín Says:

    2 klst minna en áðan!



  14. Katrín Says:

    núna er tómas búinn að vera þarna í 1 sólahring. Hvað um að þið gerið sameiginlegt blogg? Skiptist á að skrifa orð…



  15. Lena Says:

    vonlaust?

Leave a Reply