Gleðilega Páska! / Happy Easter!

Saturday, 11. April 2009

Sæl öllsömul, Gleðilega páska! En í tilefni þeirra hef ég ákveðið að gefa af mér eitt stk blogg og fyrirgefiði hvað ég hef verið löt í heila tvo mánuði. Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast þannig að undirbúið ykkur undir langan lestur. Ég er t.d. búin að kaupa flugmiðan heim. Ég lendi s.s. á klakanum þann 15. maí og það er komin alveg þvílík spenna í mig. Hlakka ótrúlega til íslenska sumarsins en að mínu mati er ekkert betra! .. En hvar á ég nú að byrja…

Valentínusardagurinn! Hann var hér þann 14. Febrúar en ein og þið vitið flest snýst dagurinn um að sýna hversu vænt manni þykir um fólkið í kringum sig eða kannski einn ákveðin aðila. Við skelltum okkur nokkrar úr boltanum út að borða um kvöldið. Við fórum á Japanskan stað þar sem kokkarnir elda matinn fyrir framan gestina og kasta honum í loftið og sýna alls konar kúnstir. Þetta var rosa gaman og mjög góður matur sem við fengum. Það kom mér svo skemmtilega á óvart þegar að eitthvað kemur fljúgandi úr háloftunum frá næsta borði og lendir ofan í kókinu mínu með látum. Þegar ég leit svo loksins í glasið reyndist þetta vera rækjuhali… hmmm.. ekki alveg það sem ég pantaði.

Stuttu eftir valentínusardaginn kom Tommi í heimsókn til mín. Erin O, og Jessy voru svo yndælar að keyra með mig niður til Orlando að sækja hann á flugvöllinn. Það var alveg æðislegt að hafa hann hjá mér og við gerðum margt skemmtilegt. Hann kom með ýmislegt íslenskt að heiman sem gerði dvölina hérna heldur betur auðveldari og svo fékk ég geisladisk frá Katrínu og Lenu sem ég hlusta nú reglulega á. Takk öll! Þið eruð æði!
Við Tommi skelltum okkur einn daginn niður í miðbæ og löbbuðum göngugöturnar og fallegu garðana. Eitthvað sem ég hef reyndar ekki gert síðan ég kom hingað. Við fórum svo auðvitað í smá verslunarferð og fengum alveg frábæran díl í uppáhalds búðinni minni Pac Sun. Borgðum ca $18 á mann og gengum út með þrjá troðfulla poka.

Tommi og ég í einum af görðunum.

Eitt kvöldið var tekið frá fyrir íslendingana í Savannah, Rebekku, Ellert og Ásgeir og fórum við öll út að borða á Jazz tapas bar. Rosa gaman og góður matur.

Björg, Ellert, Rebekka, Ásgeir, Tommi og ég á Jazz’d.

Við skelltum okkur niðrí bæ eitt kvöldin og hituðum upp með Ásgeiri sem býr einmitt á campus. Þegar við komum loksins niður í bæ fórum við inn á nokkra skemmtilega staði og á meðal þeirra var Roof Top. Þar kynntist ég einni konu sem er fertug en lítur út fyrir að vera 28 ára. Mér fannst þetta svo ótrúlegt en hún veifaði bara höndunum frá hægri til vinstri fyrir framan andiltið sitt og sagði “No babies, no babies”, mjög fyndin kona. Við héldum svo áfram og fórum á Murphys. Þar hittum við nokkrar stelpur úr liðinu og skemmtum okkur konunglega með þeim.

Björg, ég og Tommi að byrja kvöldið.

Tommi í djúpum samræðum um Ísland við þennan mann sem við hittum um leið og við stigum út úr leigubílnum.
Eftir 10 daga dvöl skutlaði ég svo Tomma á lestarstöðina. Það var erfitt að kveðja hann en ég huggaði mig þó við það að þetta var vonandi í síðasta skiptið sem við þurfum þess.

Hér erum við að borða á Olive Garden eitt kvöldið, mmmmmmm!

Viku eftir að Tommi fór kom svo Spring Break eða Spring Break WOOB WOOB réttara sagt. Ég, Björg og Kayley fórum með Carey til Panama City sem er í Florída. Við gistum heima hjá Carey þar sem að mamma hennar dekraði heldur betur við okkur.
Það kom mér á óvart hvað það var ótrúlega mikið af fólki þarna og ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurn tíman séð jafn mikið af áfengi á sama stað og þarna. Margfaldið eyjar með 100 þá kannski skiljið þið mig. Flestir dagar voru eins, við byrjðum daginn á ströndinni en svo um kvöldið tók fjörugt næturlíf við. Móðir Carey var sem betur fer með réttu tengslin þannig að við komumst oftast inn á staði VIP með lögreglufylgd og ég er ekki frá því að ég hafi sparað $150 dollara á að þurfa ekki að borga inn á staði.
Eitt kvöldið fórum við á stærsta skemmtistað Bandaríkjanna sem heitir La Vela. Við vorum búnar að heyra það að Kendra, sem er ein af playboy stelpunum í þáttunum “The girls next door”, væri að skemmta sér þar eitt kvöldið. Við alveg ótrúlega spenntar förum og leitum að henni. Ég sá hana loksins á 2 hæðinni þannig að við hlupum niður af 3ju og loksins náðum við til hennar og ég náði þessari yndisleg mynd af okkur með henni:

Hér erum við allar með Kendru (í hvíta bolnum). Rosa stolt af myndatökunni minni!

Carey, Kayley, Björg og ég, rosa ánægðar með afrek kvöldsins.

Annað sem stendur upp úr er að einn daginn skellti ég mér með Kayley á tónleika á ströndinni og þar sáum við N.E.R.D.  og svo loks Flo-Rida sem var alveg geggjað! Hann tók m.a. uppáhalds lagið okkar Aronar “Low”. Ég var því miður ekki með myndavélina mína og síminn hennar Kayley varð batteríslaus. Þið getið hins vegar séð okkur á youtube ef þið leitið að MTV Flo-Rida Panama City Beach… ehmm… smá langsótt en það sakar ekki að reyna!

Hér erum við á fyrsta kvöldinu okkar.

Við tókum oftast stelpumynd áður en við lögðum af stað niðrí bæinn. Hér er fyrsta.

Tracey (var með okkur seinustu 2 kvöldin), Björg, Carey, ég og Kayley.

Tracey, ég, Kayley og Carey á Harppon Harry’s.

Hér erum við á ströndinni, namminamm.

Ég bætti tímann í þrautabraut hersins sem var á ströndinni. Újeh!

Við skelltum okkur svo að sjálfsögðu á nautið! haha.

Þegar ég kom heim úr fríinu tók harkan aftur við. Nú þurfti að skila inn nokkrum skilaverkefnum, taka nokkur próf og hlaupa úr mér allt vit í fótboltanum. Við erum nú búnar að spila 3 leiki og ég er búin að skora í þeim 2 mörk. Svo gerði Björg eitt gullfallegt íslendingamark þar sem að ég tók hornspyrnu og hún skallaði boltann beint í netið.

Fótboltaliðið skellti sér svo í lazer tag föstudaginn var. Þetta var í fyrsta sinn sem ég spila lazer tag og ég varð ástfangið af leiknum! Ég lifði mig reyndar aðeins of mikið inn í þetta og gekk haltrandi út. Við spiluðum eldri á móti yngri og þar sem að ég er tæknilega freshmen var ég með þeim yngri. Og já.. við unnum ekki… en við börðumst með prýði!

Hún Dagbjört vinkona mín átti svo afmæli í gær en nú er hún orðin 21 árs. Til hamingju dúllan mín! Mig langaði að skella inn mynd af henni og Lindu en þær eru nú farnar til Noregs að spila fótbolta, rosa flott hjá þeim.

Linda í miðjunni og Dabjört lengst til hægri.

Nú er ég stödd í Ocala einu sinni enn heima hjá Kristin. Björg er reyndar ekki með mér heldur er hún að heimsækja vin sinn sem er einmitt líka í Ocala hjá ömmu sinni og afa. Ég hef ekki aldrei verið án Bjargar í Bandaríkjunum þegar ég hugsa um það og ég er ekki frá því að ég sé komin með smá fráhvarfseinkenni, haha.

Í dag ætlum við Kristin að spila smá golf eins og fólk gerir best í Flórída og svo leitum við að páskaeggjum á sunndaginn. Spennandi helgi framundan! Var ég búin að minnast á að það var 30 stiga hiti hér í dag? úff og það er bara apríl…

Jæja ég verð nú að hætta og til hamingju þið sem kláruðuð að lesa! Vonandi hafið þið það öll gott.

Ástarkveðjur,
Þórdís

7 Responses to “Gleðilega Páska! / Happy Easter!”



  1. Brynja siss Says:

    Já skvís þú ert ansi dugleg að blogga ;) allavega langt og flott og greinilega NÓG um að vera hjá þér :) oohh hvað ég gæfi mikið fyrir að fá að prufa að upplifa svona ævintýri algjör snilld:)

    Hlakka til að fá þig heim skvís ;)

    Love you



  2. Aldís Says:

    Hæ ástin mín. Rosalega var þetta skemmtilegt blogg, þú ert algjör snillingur. Og æðislegt hvað þú ert að upplifa margt skemmtilegt þarna. Svona á að fara að þessu áður en að maður fer að eiga börn og buru hehe.
    Sem betur fer var ég ekki fyrirmynd þín….:)
    Elska þig og hlakka svo til þegar að þú kemur heim.Nú eru bara 34.dagar þangað til
    love mamma.



  3. Lena Says:

    hahahaha ég er að horfa á girls of the playboy mansion!
    þið eruð svo sætar og svo mikið fjör hjá ykkur!
    hlakka til að fá þig heim:D



  4. Elna Says:

    Snilldarblogg! Fínt að lesa svona bunu frá þér á meðan ég bíð eftir að fólkið í skólanum fer að týnast hingað eftir páskafríið. Ég hélt að þú kæmir á sama dag og ég en jæja.. 16.maí kem ég heim, þetta hefur verið æði. Hér er 20 stiga hiti, sól og læti og fjöll auðvitað.. Ég hlakka líka til íslenska sumarsins :)



  5. Björg Magnea Says:

    haha…æ krúttípútt fékkstu fráhvarfseinkenni í ocala…reyndar mjög skrítið að vera án þín líka, ég meina núna ertu í sturtu og ég get ekki beðið eftir að þú kemur útúr henni!! hmmm sjúkt?…



  6. Linda Rós Says:

    Ég hef reyndar ekki enn náð að lesa allt bloggið hjá þér, en ætli ég muni ekki hafa tíma í það á næstunni þar sem ég fæ ekki að fara heim af spítalanum fyrr en eftir nokkra daga (búin að vera hér 2 nætur og er að verða geðveik… allt e-ð svo ömurlegt og erfitt núna :( …. )

    En bloggið mun létta mér lífið.
    Sakna þín snúllan mín
    Kv. Linda Rós



  7. Katrín Says:

    Hæ hó betra er seint en aldrei, þeas þú að blogga og ég að lesa það! Elska bloggin þín! Og djöfull er gaman hjá ykkur! Hlakka ýkt að fá þig heim sæta!!!

Leave a Reply