What A Breeze…

Tuesday, 8. September 2009

Sæl öll sömul! Ég hef ákveðið að byrja að blogga á ný og í tilefni þess ætla ég að byrja á einu löngu og góðu. Nú er ég búin að vera hér í  rétt rúman mánuð og það hefur heldur betur margt gerst á þeim tíma. Að gera herbergið heimilislegt er ekki eitt af því…

Ég, Tommi og Björg skelltum okkur til Orlando í 3 daga áður en haldið var til Savannah. Við höfðum stuttan tíma en nýttum hann þó vel. Á fyrsta degi fórum við í golf og spiluðum eftir bestu getu. Við vorum seinust á vellinum og eyddum nánast öllum deginum þar… þrátt fyrir okkar miklu hæfileika. Um kvöldið ákváðum við hins vegar að skella okkur á City Walk og fengum okkur rosa góðan mat á Hard Rock. Þjónarnir voru svo ánægðir með að fá okkur í heimsókn að þau hoppuðu upp á borð og dönsuðu YMCA við mikinn fögnuð.

Ég og Tommi
Ég og Tommi á City Walk

Björg og Tommi
Björg og Tommi… Eitthvað vandró… haha

Við skelltum okkur í vatnsrennibrautagarð daginn eftir og fór mesti tíminn í að standa í röð…………………………………………….. til að fara í eitt tæki urðum við að bíða í minnsta lagi klukkutíma og ég er ekki frá því að við höfum náð að renna okkur niður einhverja braut samtals 5 sinnum….. á einum degi…. money well spent…. en þetta var bara æðislegt. Við fórum í eina braut sem fer í 90 gráðu fall en ekki nóg með það heldur gengum við inn í eldflaug og hurð var lokuð á eftir okkur, eitt í einu, og svo allt í einu dettur gólfið undan manni og Voilá! Þú ert í frjálsu falli…. Björg var í sjokki afþví að hún hefur aldrei heyrt mig öskra jafn… jah…. stelpulega…. haha.

Við eyddum restinni af dvölinni í að versla, versla og versla aðeins meira. Við urðum að versla fyrir íbúðina; diska, glös, ruslatunnu og allt það og því skelltum við okkur í IKEA. Þessi verslun var alveg eins og búðin á Íslandi þannig að við rötuðum alveg fullkomlega vel.  Einum degi, nokkruð hundruð dollurum og troðfullum bílaleigubíl seinna vorum við loksins á leið til Savannah.
PotteryBarn
Ég og Tommi fyrir utan Potterybarn, svona eins og í FRIENDS! Við vorum ekkert smá spennt… haha

Shopping
Fötin sem við versluðum okkur…

Þegar við fengum íbúðina okkar var hún vægast sagt ógeðsleg. Það voru dauðar pöddur og köngulær á gólfinu, hola í veggnum, blettir í þakinu, grútskítugt teppið, ógeðslegt baðið og já margt fleira. Það versta var að það var kattarhlands lykt af dýnunni okkar Tomma þannig að hann eyddi fyrstu nóttinni í sófanum og ég til fóta hjá Björgu… Við urðum að láta laga þetta strax þannig að við fórum og kvörtuðum án tafar og smátt og smátt var þetta allt lagað. Við Tommi keyptum okkur svo nýja og stærri dýnu til að láta fara betur um okkur. Þannig að það má segja að íbúðin sé öll að koma til þótt seint sé en nú á bara eftir að skreyta hana betur og gera hana heimilislegri þannig að ég set myndir af henni seinna.

Rúmið Okkar
Hér er nýja rúmið okkar Tomma… Vil bara minnast á það að það er alltaf svona vel búið um það… alveg satt!

Fótboltinn var algjört hell þegar við komum hingað fyrst. Við byrjuðum í pre-season sem var í rúma 10 daga. Pre-seasonið var svona: 8.00 – fitness test sem gerir alveg útaf við þig, 10.00 – 2ja tíma löng æfing og að lokum 17.00 – önnur 2ja tíma æfing. Þannig var þetta fyrstu 10 dagana en svo byrjaði skólinn sem bjargaði okkur, þá var bara ein 2ja tíma æfing á dag. Við hörkuðum þetta þó af okkur og nú erum við komnar á rétt ról. Við erum búnar að spila 4 leiki samtals og af þeim unnum við 3 en töpuðum 1. Þannig að þetta var alveg ágætis byrjun. Við munum eiga fleiri útileiki en heimaleiki þetta árið þannig að ég verð mikið á ferðinni. Um helgina t.d. eyddi ég samtals 10 tímum í rútu… en svona er þetta bara. Á meðan við Björg skólumst og fótboltumst er Tommi alveg á fullu að vinna. Hann er svo duglegur! Búinn að koma sér vel fyrir með litla “skrifstofu” hliðiná skrifborðinu mínu en ég set inn myndir af því næst.

Ég og Björg
Ég og Björg, tilbúnar að keppa á móti indjánunum í Catawba (unnum 3-1).

GameDay
Á leið að hita upp fyrir leikinn.

Foreldrar
Foreldrarnir tóku sig til og höfðu tilbúinn mat fyrir okkur eftir leikinn. Þetta tjald er alltaf mætt á staðinn þar sem við erum að fara að keppa.

Næsti leikur er í Tampa, Flórída þannig að við munum keyra 7 tíma þangað, keppa kl. 7 um kvöldið og keyra svo til baka… haha ég hlæ bara að þessu. Þetta verður eitthvað skrautlegt. Sérstaklega þar sem að stelpurnar þurfa að fara í skólann daginn eftir. Sem minnir mig á það að ég er í fríi á föstudögum! Jeijj!

Da Bus
Hér erum við í rútunni að hlusta á þjálfarann.

Við erum bíllaus hérna úti og nú erum við ekki með neina herbergisfélaga til að redda okkur þannig að við verðum einhvern veginn að skemmta okkur heima fyrir. Jake og Corey eru reglulegir gestir hjá okkur og því skelltum við okkur í skemmtilegan byssuleik með NERF byssum sem skjóta pílum. Ekkert smá ýktar byssur. Daginn eftir var íbúðin okkar eins og skotvöllur, full af byssuskotum út um allt. Ótrúlega gaman að þessu og góð leið til að finna barnið í sér!

Jake og Corey
Hér eru strákarnir að missa sig í byssuleiknum! Svo getið þið séð smá í hjólin okkar Bjargar sem við fengum okkur um daginn.

Jake hefur verið rosa góður við okkur og lánaði okkur m.a. 26” plasma sjónvarpið sitt og x-boxið sitt… sem Tomma leiddist ekkert, haha. Þannig að núna erum við með eitthvað annað í stofunni heldur en bara borð og stóla sem er bara frábært.

InDaPool
Ég, Kelli, Erin og Björg skelltum okkur aðeins í laugina í dag þar sem að það er frídagur og engin æfing. Við létum það sko ekki stoppa okkur að sólina vantaði!

Að lokum vil ég minnast á það að við Björg erum orðnar Íslandsmeistarar! Sem þið væntanlega vitið, en ég er bara svo stolt af stelpunum að ég varð að minnast á þetta!!

Meira er það ekki í bili, má ekki hafa þetta of langt… En vonandi hafið þið það öll gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

7 Responses to “What A Breeze…”



  1. Björg Magnea Says:

    Enn skemmtilegt blogg hjá þér!! Gaman að þessu;) ….en breyttu nú setningunni efst í eitthvað eins og “Stelpur rúla en strákar droola”



  2. Þórdís Pétursdóttir Says:

    Hahaha, way ahead of you ;) en takk! :D



  3. Jóna Says:

    Gaman að lesa hvað það er gaman hjá þér! Og já til hamingju með að vera íslandsmeistari ;)



  4. Elna Says:

    Svo gaman að fylgjast með ykkur!.. Nú verður þú að standa þig þar sem ég er í háskóla í haust en ekki úti í Noregi að leika mér, þannig ég hef tíma að koma reglulega hingað inn! Gaman að fá alltaf myndir líka :D



  5. Margrét H Says:

    HÆ Skemmtilegt blogg, gaman að fá að fylgjast með:)



  6. Linda Rós Says:

    Já já já loksins :) Frábært að allt gengur vel hjá ykkur :) Ég bara í Osló í skólanum…
    Þurfum að fara að spjalla!!
    Miss u



  7. Aldís Says:

    Gaman að þú sért farin að blogga, það er svo gott að fá svona myndir með love mamma

Leave a Reply