What a Month!
Tuesday, 27. October 2009
Sæl öll sömul. Ég ákvað loksins að blogga og setja inn nokkrar myndir af því sem hefur verið að gerast undanfarið í tilefni þess að ég var að fá nýja myndavél, jeijj! En nú er spurning hvar ég eigi að byrja…
Við komum okkur loksins fyrir í íbúðinni, keyptum nokkur plaggöt, hengdum upp myndir og síðast en ekki síst… fór ég í efnabúð og hengdi upp efni fyrir gluggann okkar með teiknibólum og bjó til gardínur! Ekki er ég bara það fullorðin að geta eldað fyrir heimilið heldur er ég farin að “sauma” gardínur.
Fótboltinn er búinn að vera algjör rússibana ferð, við byrjuðum alveg frábærlega en fórum svo aðeins að slaka á… þangað til enginn átti séns í að vinna okkur og svo í að tapa tveimur leikjum í röð… Með þessu ferðalagi hef ég áttað mig á einu í sambandi með Bandaríkjamenn, og það er að þegar við erum heima að horfa á bíómyndir um íþróttir og þjálfararnir og leikmennirnir eru að halda allar þessar dramatísku ræður þá hugsum við með okkur, “vá hvað þetta er mikið Hollywood,” en ég er hins vegar búin að komast að því að þetta ætti að vera: “vá hvað þetta er Bandarískt!”.
Við stelpurnar erum búnar að eyða alveg rosalega miklum tíma í rútu síðastliðinn mánuð en flestir leikirnir okkar eru búnir að vera útileikir. Þá er um að gera að taka með sér skólabækur og vera duglegar að læra! Hér eru tvær myndir af stelpum sem hafa verið alveg einstaklega duglegar að læra:
Hér eru Erin og Björg virkilega að einbeita sér að náminu, Björg ákvað að taka hugsuðinn á þetta!… er þetta vonta af mér? nei nei… haha
Við erum til dæmis á leiðinni heim í rútunni eftir einn góðan sigur leik, unnum 5-1, þannig að við erum allar að koma til. Nú eru hins vegar bara tveir leikir eftir af venjulegu tímabili og svo hefjast tvær úrslitakeppnir. Önnur er fyrir fylkið okkar, eða Peach Bealt Conference og svo komumst við vonandi í úrslitakeppnina hjá NCAA en þar koma saman bestu lið allra fylkjanna og keppast um, jah, ekki Íslandsmeistara titilinn heldur Bandaríkjameistara titilinn býst ég við. En markmiðið okkar er að komast í þau úrslit.
Halloween fer að nálgast og að sjálfsögðu eru allar búðir fylltar af gómsætu nammi til að gefa krökkunum og allir garðar eru orðnir vel skreyttir. Svo svona til að koma mér í stemninguna þá litaði ég mynd af Bangsímon og Tígra í Halloween búningunum sínum áðan á leiðinni á leikinn! En við munum því miður missa af Halloween þetta árið þar sem að við verðum að keppa í Tennesse sem er í 8 klukkutíma fjarlægð, en við munum bara halda upp á það seinna.
Hér erum við stelpurnar að spila “Sugar” á hótelinu okkar. Þessi leikur er svona blanda af Laumu og A-S-N-I.
Við Tommi erum búin að ákveða að flytja heim eftir áramót. Ætlum okkur að byrja að leigja vonandi í Kópavoginum eða Reykjavík, þannig að ef þið vitið um einhverja íbúð sem er að losna þá megið þið endilega láta okkur vita. Það er skrítið að hugsa til þess að koma aftur heim í kuldann en ég veit að það á eftir að vera gott að koma heim.
Pabbi Bjargar var í heimsókn hjá okkur í viku en hann fór einmitt aftur heim snemma í morgun. Ég verð að segja að hann dekraði dáldið við okkur, eldaði gúrme mat handa okkur og fór með okkur í mollið og svona. Það var mjög gaman að hafa gest hjá okkur og þið eruð öll ávallt velkomin! En Steini kom með gull medlíurnar handa mér, Björgu og Lee. Við ákváðum að gera okkar eigin “athöfn” við afhendinguna og buðum Lee í mat til okkar. Hér erum við svo allar medalíurnar okkar….. Ég segi bara betra seint en aldrei!
Hér eru þau feðgin.
Steini að afhenda medalíurnar.
Íslandsmeistarar, bara að vera viss um að þetta sé ekta!
Íslandsmeistari, fyrir utan húsið okkar.
Jæja, nú þarf ég að fara að læra undir próf… Anatómían alltaf skemmtileg. En vonandi hafið þið það öll gott!
Ástarkveðjur,
Þórdís
Linda Rós Says:
Gaman Gaman
Flott blogg hjá þér!
Þórdís Says:
Takk Linda mín!
Margrét H Says:
Skemmtilegt:)
Hlakka til að fá ykkur snúðana heim;)
Leeanna Woodworth Says:
Eg tala ekki islensku! How am I supposed to read your blog that you tell me about when you don’t subtitle it in English! ugggh how rude!! PS put your pic’s on facebook and tag me so I can get them! Love you!!
Aldís Says:
fRÁBÆRT BLOGG, HLAKKA SVO TIL AÐ FÁ YKKUR HEIM. LOVE MAMMA – TENGDÓ
Dagbjört Says:
Ég er óskaplega glöð að heyra fréttir af þér/ykkur..ég bíð spennt eftir að búa í sama landi og þú!
Þórdís Says:
Já ég hlakka líka voða mikið til að koma heim
Lee, I’ll work on the pictures! sorry about the subtitles
Dagbjört, þýðir það að þú sért að flytja heim á klakann???