Prófum Loksins Lokið!
Thursday, 30. October 2008
Þegar ég sá kommentin frá Katrínu og Elnu fattaði ég að ég hef ekkert deilt með ykkur hvað ég er að gera á vellinum hérna úti þannig að best að segja ykkur aðeins frá því. Ég hef verið að spila á hægri og vinstri kanti til skiptis og svo hefur það komið fyrir að ég spili center þegar við spilum 4-3-3. Liðið mitt er í 5 sæti sem stendur en það getur breyst á laugardaginn þegar við keppum seinasta áætlaða leikinn okkar. Þegar þeim leik er lokið förum við í “playoffs” þar sem að 8 efstu liðin keppa til úrslita. Þetta er allt voða spennandi og ég læt ykkur vita hvernig fer.
Vikan sem leið hefur verið heldur róleg. Ég get ekki deilt með ykkur mikið af myndum afþví að myndavélin varð batteríslaus og er ég að hlaða hana fyrst núna.

Ég sit þarna hægra megin við sjónarpið, hausinn á Kelly er reyndar aðeins fyrir.

Vinstra megin er gengið inn í herbergið. Það er stórt pappaspjald af Jack Sparrow í andyrinu fyrir aftan Jamie, sést dáldið illa í það. Mér fannst ég svo sannarlega velkomin þegar ég sá það í fyrsta skiptið, hehe. Myndavélin varð batteríslaus eftir þessa mynd.
Það var leikdagur seinasta laugardag. Þetta var líka Seniro Day þar sem að stelpurnar á loka árinu sínu eru heiðraðar. Þetta var rosa flott, þær gengu inn á völlin og leiddu mömmu sína og pabba og tóku á móti viðurkenningu. Ein af stelpunum leiddi ömmu sína, það var alveg rosalega sætt. Við kepptum á móti North Georgia á laugardaginn en töpuðum því miður 2-0. Þetta var hrikalega slappur leikur að öllu leyti en ég reyndi að láta hann ekki fara í taugarnar á mér um kvöldið afþvi að ég, Bjög og vinir okkar Blake og Dawda vorum búin að skipuleggja skemmtikvöld.
Við byrjuðum á að skella okkur á Starbucks og ég fékk mér White Chocolate Moccha eins og alltaf, alveg hrikalega gott kaffi! Þegar við vourm búin að spjalla þar í góðan tíma um myndarlegt frægt fólk, kvikmyndir, lífið og tilveruna drifum við okkur á video leiguna. Það tók okkur örugglega klukkutíma að velja eina mynd og varð Indiana Jones fyrir valinu. Við horfðum á myndina heima hjá foreldrum Blake og ég verð eiginlega að segja ykkur frá einu herberginu þarna, það var ást við fyrstu sín! Inni voru tveir sófar, tveir lazy-boy stólar, risa plasma sjónvarp, sjálfsali með fanta, mountain dew, diet coke og dr. Pepper, ísskápur með kóki, bór og malti, klakavél og ég veit bara ekki hvað. Herbergið var allt gert í stíl eftir uppáhalds “fótbolta” liðinu þeirra Georgia Bulldogs og svo voru ýmis verðlaun og myndir af börnunum á veggjunum. Ég lærði eitt eftir þessa heimsókn. Þetta er skylduherbergi á hvert heimili! Þegar við komum svo heim fóru allir niður til körfuboltastrákanna þar sem að fólk var að sötra bjór. Það gætu komið myndir af mér á Facebook þar sem að ég er að þykjast vera rappari… vil bara vara ykkur við fyrirfram…
Ég er búin að taka þrjú próf síðan ég bloggaði síðast, tvö erfið þannig að ég er búin að vera að læra mest alla daga. Ég var að koma úr líffræðiprófi rétt í þessu, gekk alveg allt í lagi held ég… vona ég. Mjög fegin að það eru engin próf á næstunni.
Ég lét framkalla myndir fyrir nokkru síðan sem ég hengdi svo upp á vegginn hjá mér. Kom alveg ágætlega út held ég, en herbergið er mun heimilislegra með myndir að heiman.

Þetta er allavegana byrjunin, ætla að reyna að framkalla fleiri myndir fljótlega.

Vel búið um rúmið og svona eins og alltaf…
Á morgun er Halloween. Ég geri örugglega ekki neitt á morgun afþví að það er leikur á laugardaginn en við fótboltastelpurnar erum búnar að finna þema fyrir Halloween partýið okkar sem verður eftir tímabilið. Þemaið er “Cartoon Hoes and Superhero Bros,” sem þýðir að allar stelpurnar eiga að vera teiknimynda karakter… hmm…. einhverjar góðar hugmyndir um hvað ég get verið???
Ég hef þetta ekki lengra í bili en vonandi hafið þið það öll gott!
Ástarkveðjur,
Þórdís
Linda Says:
Fyrst til að kommenta!
Voðalega dúlló myndirnar þínar og raðaðar í svona hjarta
Gaman líka að sjá mynd af sér á veggnum hjá þér
knús á þig :*
Lena Says:
vá Gott að johnny er þarna til að passa þig! (veit ekki hvort Björg geri eitthvað gagn:P)
Myndirnar eru ekkert smá flottar!
Mamma Says:
Hæ ást. Alltaf jafn gaman að fylgjast með blogginu hjá þér og sjá allar myndirnar,Love mamma
Dagbjört Says:
vá! væri til í svona bíóherbergi, þarf að borga í sjálfsalanm?
:*
gangi þér vel á morgun
Þórdís Says:
Nei það er allt frítt!
Algjör snilld
Tommi Says:
Frábært blogg. Hlakka til að heyra í þér ástin mín, hlakka meira til að hitta þig.
Katrín Says:
Halló fínt blogg. Fínt hjarta