Halloween is in the Air

Thursday, 23. October 2008

Nú hef ég verið með flensu í rúma viku en daginn eftir að ég skrifaði bloggið að neðan vaknaði ég með þvílíkt kvef, eymsli í hálsi og höfuðverk. Jessy vinkona mín var með svo miklar áhyggjur af mér og vildi koma mér í góða heilsu sem fyrst svo ég gæti keppt laugardaginn var og keyrði mér í leit að lækni. Það er læknir hérna á campus en hann var víst ekki við. Við leggjum af stað og komum við á fjórum heilsugæslum en það gat engin tekið á móti mér þar sem að ég var með tryggingu frá útlöndum og var okkur alltaf bent á að leyta annað, þangað til að við komum að seinustu heilsugæslunni í nánd en þar þurfti ég að borga 13.000 kr fyrir skoðun og ég yrði að senda reikninginn heim til að fá endurgreitt frá ríkinu. Já nei takk…. Ég gafst upp á staðnum og við héldum af stað heim, án skoðunar og lyfja. Jessy var rosalega pirruð á þessu og blótaði heilsukerfinu í bandaríkjunum í sand og ösku. En já, ég fór bara í apótekið og þar var mjög yndæll maður sem benti mér á sterki lyf sem ég hef verið að taka tvisvar á dag síðan og ég er bara að verða góð! Hver þarf lækni??

Við hoppuðum upp í rútuna á laugardagsmorgun kl. 8.30 og keyrðum til Tampa, Florida, til að keppa. Hótelið sem við vorum á var alveg svaaaakalega flott og ég fékk að sofa ein í tvöföldu, mjúku rúmi, mmmmm… (rúmið mitt hérna er svo lítið) þetta var alveg draumur í dós. Ég veit ekki hversu margir þékkja rokkarann Meatloaf en hann var á hótelinu okkar á sama tíma og við, ég hitti því miður ekki á hann en hann var að halda tónleika um kvöldið.


Hér er hótelherbergið okkar Tracy markmanns í Tampa.


Björg, Lianne, Alyssa, Ég, Tracey, Erin "Vanilla" og Erin "Chocholate" í heitapottinum á hótelinu.

Við fórum eitthvað að fíflast í pottinum…

…Og duttum útí fyrir vikið, haha.

Við unnum leikinn okkar á móti Tampa sem voru meistarar í fyrra. Þetta var fyrsti mikilvægi sigurinn okkar en við unnum 3-2 í framlengingu. Ég var svo ánægð að ég hló og grét á sama tíma eftir leikinn sem ég held ég hafi aldrei gert áður. Kanarnir eru að gera mig rosalega dramatíska… En þetta var æðislegt, loksins gátum við farið heim með bros á vör. Ég fattaði svo reyndar þegar við komum heim til Savannah að ég hefði gleymt símanum mínum á hótelinu sem er semsagt rúma 6 klukkutíma í burt…. ég hætti að brosa þá….. En þetta reddaðist, hann er á leiðini hingað með póstinum.

Nú fer að styttast í Halloween þannig að Jamie og Kristen buðu okkur að koma heim til þeirra og skera í grasker. Við byrjuðum á því að kaupa grasker en fólk situr í básum víðsvegar um bæinn með graskerssölu. Við fórum á eina slíka og völdum okkur nokkur gullfalleg grasker. Ég og Björg skárum í eitt saman og það heppnaðist svo vel skal ég segja ykkur. Það kom mér rosalega á óvart hvernig innihaldið er í graskerum, ég átti von á að sjá svona þykkt lag af mauki en í staðin voru fræ og djúsí, hárlaga klessur. Hljómar alls ekki vel en það er rosa gott að stinga fræunum inn í ofn og salta, næstum því eins og poppkorn! Hérna eru nokkrar skrautlegar myndir:

Jessy (sem ákvað að pósa með stæl), Erin, Carey, Kristin, Jamie, Björg og Amanda. Tilbúnar í átakið!

Hér er ég búin að koma mér í stöðu og tilbúin að skera…

…gott að narta aðeins í girnilega innihaldið, ehemm…

…Mjög svo einbeitt við að skera út drauginn okkar Bjargar.

Hér getið þið séð fræin og innihaldið.

Hér eru tvö tilbúin grasker. Graskerið okkar Bjargar er vinstra meginn…

…Og svo í myrkri. Spooky Spooky!

Í gær var AASU dagurinn, semsagt dagur skólans. Það voru settir upp básar víðsvegar um kampus. Það var verið að gefa pulsur, ýmsar deildir voru með bása, íþróttadeildin til dæmis og það var hægt að fara á svona naut sem snýst í hringi. Það var líka svona karl sem sat á palli með vatnsbað fyrir neðan sig og ef maður hittir á skotmarkið, dettur hann niður. Ég prófaði að kasta og var alveg hrikalega langt frá því að hitta… En það var einn hafnaboltastrákur sem fékk karlinn til að baða sig aðeins. Við kepptum líka einn leik í dag. Unnum 4-0, frekar lítið um hann að segja nema það að ég náði að skjóta með hjólhestaspyrnu sem fór rétt yfir marki. Frekar svekkjandi, hefði verið geðveikt gaman hefði hann farið inn.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, þarf að taka lyfið mitt og svona. Vonandi hafið þið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Home Sweet Home

Wednesday, 15. October 2008

Það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá mér undanfarið. Ég var að heiman í fjóra daga og kom loksins heim í dag, en ég segi betur af þessari dásamlegri ferð eftir smá…

Sunnudagurinn 15 október var frábær í alla staði. Ég var vakin snemma (að mínu mati) kl. 10 þegar að Jamie og Kristin komu að heimsækja mig og Björgu sem voru þá einar heima. Þær komu með fullan poka af gómsætum matvörum og ég og Jamie brettuðum upp ermar og byrjuðum að elda morgunmat. Við gæddum okkur svo loks á biscuit (bollur), kjötbollum, snúðum og eggjabrauðum, mmmm! Besti morgunmaturinn sem ég hef fengið síðan ég kom hingað! Þegar við vorum búnar að borða og horfa á Ace Ventura skelltum við okkur heim til þeirra að ná í hundana þeirra tvo; Tucker og Striker, báðar stelpur reyndar. Við fórum með þær að vatni sem er hérna nálægt og létum þær elta eitthvað appelsínugult dót út í vatnið aftur og aftur. Ég er ekki frá því að þær eru betri að synda en ég! Cary kom svo stuttu seinna með littla hundinn sinn Charlie, sem er reyndar líka stelpa, og eftir nokkur köst gátum við fengið hana til að hoppa út í vatnið líka.

Hér eru Tucker, Striker og Charlie að berjast um dótið. Charlie greyið þorði ekki út í.


Hér er ég, Carey, Björg Kristin og Jamie. Ég verð að segja að ég er enn og aftur að brillera á 10 sekúndna stillingunni ;)

Löggan kom að vatninu og eyðilagði alla skemmtunina afþví að hundarnir máttu víst ekki hlaupa um án ólar þannig að við drifum okkur bara í burtu. Förinni var svo haldið í mollið þar sem við keyptum okkur Victoriu Secret nærföt á tilboði, alveg flottastar! Við tókum okkur svo pásu af öllum þessum félagsskap og ég dreif mig heim á skype að tala við fólkið sem ég elska heima. Eftir tveggja klukkustunda spjall komu Jamie og Kristin að sækja okkur Björgu og við fórum að versla okkur í matinn. Þær elduðu handa okkur gómsætan kjúkling og svo sátum við úti hjá þeim við bál og borðuðum smores sem er kex með bræddum sykurpúðum og súkkulaði, mjög svo bandaríkst og rosalega gott. Ég fór svo í háttinn um kvöldið södd og sátt með lífið.

Hér erum við við matarborðið, tilbúnar að borða.


Hér eru Jamie og Kristin að kenna okkur að búa til Smores.

Vikan einkenndist af undirbúningi fyrir helgina sem var að líða. Við urðum að spretta frekar mikið og hlupum suicites á hverri æfingu, hrikalega leiðinlegt! En það borgaði sig greinilega þar sem að við unnum báða leikina um helgina. Við ókum í fjóra tíma til Georgia State og gistum þar tvær nætur. Eftir báða leikina fengum við nammi í svona halloween pokum frá foreldrunum, en það er farið að styttast í þessa draugarlegu hátíð. Það er mjög gaman að sjá hversu spenntir allir eru fyrir þessari hátið en fólk skreytir garðana og gluggana með gervi köngurlóarvefum, legsteinum, beinagrindum, graskerum og fleira. Ekki góður tími fyrir myrkfælna….

Hér erum við Davi, Tracey, Ég, Amanda, Björg og Lianne í fótabaði í heitapottinum á hótelinu.

Við fengum frí á mánudag og þriðjudag í tilefni þess að það sé komið haust. Þegar við komum heim úr keppnisferðinni fórum ég, Björg og Davi í heimsókn til vina hennar Davi sem eru í öðrum háskóla. Við gistum þar í tvær nætur og það var bara mjög gaman, dáldið subbulegt en ég átti svo sem von á því þar sem að það búa bara strákar þarna. En campusinn þeirra var alveg rosalega flottur, það er til dæmis sundlaug fyrir utan íbúðirnar með sólbekki og við eyddum degi tvö þar og sleiktum sólina aðeins.

Hér er ég, Daniel, Björg, Alex, Chris og Davi. Alveg til í sundudagskvöldið!

Ég var að klára að skrifa ritgerð fyrir ensku tímann á morgun. Ég ákvað að skrifa um muninn á því að spila fótbolta á íslandi og í bandaríkjunum. Megin munurinn er sá að ég get spilað hérna á grasi í stuttbuxum í desember en á meðan ég þarf að spila á gervigrasi í snjógalla heima á sama tíma. Það er ennþá alveg gríðarlega heitt hérna en það er spáð 31 stiga hita á morgun, það á reyndar að kólna um helgina og það ferð niður í 20 gráður, brrr… haha.

Litli frændi minn hann Sindri var þriggja ára núna á föstudaginn. Ég gat því miður ekkert heyrt í honum til að óska honum til hamingju með afmælið eða neitt en ég frétti að hann hefði átt góðan dag sem er fyrir öllu. Hérna er hann á tveggja ára afmælinu sínu, algjör dúlla!

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vonandi hafið þið það gott elskurnar!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Low Country Boil

Sunday, 5. October 2008

Ég frétti af því í vikunni að það hefði snjóað alveg gríðarlega í vikunni heima, ég á varla til orð. Ég held það hafi ekki snjóað svona snemma í mjög langan tíma… en ég er reyndar ekki viss. Ég vil allavegana nota tækifærið þar sem að ég bý í útlöndum og deila því með ykkur að lægsta hitastigið í næstu viku verður 25 gráður….brrr… hehe. Annars er gengið þessa stundina 112 kr! Það var 82 krónur þegar ég kom út og ég vildi óska þess að ég hefði tekið allan peninginn út úr hraðbanka þá. Í hvert skipti sem ég þarf á aur að halda svitna ég við það að slá inn pin-númerið í hraðbankanum, peningurinn hverfur gjörsamlega.

Vikan sem leið var alveg hrikalega dramatísk. En eins og ég minntist á í fyrra bloggi töpuðum við á móti liði sem við hefðum nú átt að vinna. En þar sem að við gerðum það ekki fengum við nú heldur betur að finna fyrir því. Við urðum að mæta á morgun æfingu daginn eftir kl. 6.30… Þið sem þekkið mig allra best vitið að ég er alls ekki morgunfugl og ég vil meina að fólk á öllum aldri á bara að vera uppi í rúmi á þessum tíma. En við hittumst nú og gerðum nokkrar æfingar til að sanna fyrir okkur að við viljum virkilega gefa allt í þetta tímabil. Við gerðum þetta aftur daginn eftir.
Ég hef ekki minnst á það að við tökum alveg fáranlega erfið þrekhlaup á nánast hverri einustu æfingu. Þetta er kallað 1-20’s hérna úti en á Íslandi köllum við þetta interval hlaup. Það virkar þannig að við fáum 17 sekúndur til að hlaupa á milli markanna og svo mínútu til að koma okkur til baka. Þannig eru fyrstu 4 hlaupin, svo fáum við 18 sekúndur næstu 3 og svo loks 19 seinustu 3. Samtals 10 sprettir yfir völlinn. Við gerðum þetta daginn fyrir leik í seinstu viku. Ég er farin að verða alveg ágæt í þessu en ég vil benda á að ég gerði þetta svona í mesta lagi 4 sinnum á tímabili með Stjörnunni nema að þá var þetta þrek-próf.

Við unnum leikinn á miðvikudaginn 6-0, ekki mikið frásögufærandi úr þeim leik en alltaf gaman að vinna! Við kepptum annan leik í gærkvöldi á móti Georgia State sem endaði með jafntefli 2-2. Fáranlega spennandi leikur, við vorum undir 2-1 í hálfleik og náðum ekki að jafna fyrr en á 89 mínútu. Þetta var alveg geðveikt, við börðumst vel og gáfumst ekki upp sem við höfum ekki gert í langan tíma.

Ég, Björg og Erin O’rourke ákváðum að baka eitt kvöldið. Klukkan var orðin rúmlega 11 og við skelltum okkur í búðina að kaupa okkur Betty Crocker bökunarblöndu og krem. Við bökuðum Cupkakes með vanillukremi, guð minn góður hvað þær voru góðar. Ef þið komið í heimsókn til mín skal ég búa til kökur handa ykkur, you’re gonna love it!


Sjúkraþjálfarinn okkar Jess bauð mér og Björgu í Low Country Boil á föstudaginn með Matt, eignmanni hennar og vini þeirra. Kirkjan hennar var að halda þetta og þetta er víst siður hérna í suðurríkjunum þar sem að rækjum, bjúgum, kartöflum og maís er skellt í pott með smá kryddi og allt soðið saman. Þetta var alveg ágætt og gaman að prófa þetta, við urðum að borða þetta með puttunum þannig að maður fékk svona smá útlegustemningu. Eftir að við vorum búin að borða fengum við að skoða kirkjuna hjá þeim, en þau eru mormon trúar sem þýðir að þau trúa því að það eru enn útsendarar frá guði á jörðu sem eru að gera góða hluti. Ég held það sé eitthvað svoleiðis. En kirkjan var mjög skemmtileg, þau voru með körfuboltavöll í miðjunni, kennslustofur, stórt baðkar í jörðinni þar sem að fólk er skírt, sal þar sem haldin er messa og fleira og fleira. Það var mjög gaman að sjá hvernig þetta er hjá þeim.


Við höfum verið að reyna að kenna stelpunum íslensku og það gengur svona, lala. En það er ein stelpa sem er bara snillingur í íslenskunni, Kristin Burton. Hún kann að segja sól, hvað segiru, fínt, ég heiti og fleira skemmtilegt. En eftir að við komum heim með rútunni í kvöld vorum við að kveðja hana og hún kallar á eftir okkur: “Ég elska þig Iceland” og “góða nótt tíks”, hehe. Ég er svo stolt!

Jæja, segjum þetta gott í dag elskurnar :) Hafið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Composure

Sunday, 28. September 2008

Afsakið hvað ég er sein að blogga hérna, það gerist ekki aftur!

Ég held ég byrji á að segja frá deginum í dag. Við kepptum á móti liði sem liðið mitt hefur tapað á móti á hverju einasta ári og hefur alltaf unnið titilinn. Við höfum verið að undirbúa okkur fyrir leikinn frá upphafi og bara hreinlega beðið eftir að þessi dagur rynni upp. Leikurinn byrjaði klukkan 1, sem er heitasti tíminn hérna og það voru örugglega 31 gráður. Við skoruðum fyrstu tvö mörkin og erum yfir í hálfleik. Það gerðist eitthvað í hálfleik og við hreinlega hættum að reyna sem leiðir að því að þær jafna okkur. Eins og reglurnar eru hérna verður framlenging. Þær fá aukaspyrnu og vinna….
Þetta er alveg hrikalega niðurdrepandi byrjun á þessu bloggi því miður en ég verð að deila þessu með ykkur afþví að ég held mig hafi sjaldan liðið jafn illa eftir leik og í dag.

Annars hefur verið alveg nóg að gera. Ég fór í tvö próf á föstudaginn í Theatre appreciation og stærðfræði. Mér gekk alveg ágætlega en ég verð að viðurkenna það að ég hafði það alveg fáranlega gott í versló. Ég sé fyrst núna fegurðina við bekkjarkerfið. En þetta er svosem alveg ágætt líka.

Eins og ég minntist á í fyrra bloggi þá áttu ég og Tommi tveggja ára afmæli þann 23. Ég komst að því hvað ég á góða vini hérna þá. En um kvöldið hurfu allt í einu allir úr íbúðinni, ég nátla bitur yfir því að allir hafi skilið mig eftir og svara ekki símunum sínum. Þannig að ég, hin mikla húsmóðir, fer bara að ryksuga. Stuttu síðar birtast allir inn um dyrnar "Til hamingju með daginn!" og með gjafir :D Algjörir snillingar. Björg stakk upp á þessu og þau fóru að kaupa sex and the city, afþví að mig langaði svo mikið í hana, og stórt plaggat af the rocky horror picture show, en þið vitið flest öll hvað ég elska söngleiki mikið, og eitt stk súkkulaði. Ég náði sem betur fer myndum af þess:

Frá vinstri eru þetta; Jessy, Jake, Will, Davi og Björg.

Föstudagurinn var mjög skemmtilegur. Við busarnir skipulögðum kvöldið mjög skemmtilega. Við gerðum okkur fínar og komum okkur í gírinn með orkudrykkjum (við megum ekki drekka). Við skelltum okkur niður í down town Savannah og gengum meðfram river streat þar sem allt fjörið er. Við gengum fram hjá öllum skemmtistöðunum og lífinu og gengum ánægðar með lífið inn í nammibúðina. Þetta var himnaríki sælgætisins, þarna voru salt water taffee búið til og súkkulaði kringlur, alls konar sykruð epli, ís og ég veit ekki hvað. Eftir að við höfðum keypt það sem okkur girntist héldum við aftur af stað í bílinn. Við fórum í afmælispartý hjá einum vini mínum og þar lærði ég að spila bear pong. Fegurðin við það er að það eru tveir í liði þannig að félaginn minn fékk að drekka fyrir okkur bæði. Geggjað stuð. Við höfðum svo ákveðið að fara í miðbæinn í draugaleit. En Savannah er þekkt fyrir að vera reimt. Það eru mjög svo scary draugagarðar þarna og margt fleira. Við ákváðum reyndar að fresta þessu ævintýr til betri tíma þar sem að kl. var orðin margt og svona. Við komum í íbúðina okkar og fórum í "ég hef aldrei" með gosin okkar þar sem að margt skemmtielgt kom í ljós. Við enduðum svo kvöldið með því að fara á bráðamóttökuna á spítalanum og eyddum klukkustund þar en Erin O. þurfti að gera eitthvað verkefni. Æðislegt föstudagskvöld!

Annars hef ég samband við fjölskylduna mína í gegnum skype og um daginn fékk ég að tala við systur mína og börnin hennar. Ég tók myndir af þeim og ég vil deila þessum krúttum með ykkur.

Hér er mamma, Pétur litli og Brynja. Ef þið kíkið í neðra vinstri hornið sjáið þið mig taka myndina.

Mamma og Fannar sæti.

Mamma, Pétur og Camilla sæta.

Ég hef þetta ekki lengra í bili, vonandi hafið þið það gott elskurnar!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Tvö Mörk Komin í Hús!

Tuesday, 23. September 2008

Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast en það er búið að vera mikið að gera. Miðvikudaginn seinasta spiluðum við leik á móti liði sem heitir Erskine og við unnum 9-0. Þetta var heimaleikur og ég spilaði mest allan tímann. Ég fékk alveg óteljandi færi í þessum leik en mér ætlaði ekki að takast að skora. Þegar að þrettán sekúndur voru eftir náði ég loksins að koma boltanum í netið. Markið reyndist vera nýtt skólamet en liðið hefur ekki unnið svona stórt síðan það var stofnað. Þetta var alveg rosalega gaman og liðsfélagar mínir fegnir að bölvuninni að ég geti ekki skorað hafi verið aflétt.

Ég fékk lánaðan bílinn hennar Jessie til að sækja pakka sem Tommi sendi mér. Vá hvað ég sakna þess að keyra! Ég kann reyndar frekar lítið á sjálfskipta en þetta reddaðist. Í pakkanum var alveg fullt af íslensku nammi; fylltar reimar, þristar og grænn ópal mmmmmm. Takk ástin mín! Þú ert alveg að bjarga dvöl minni hérna.

Við þurfum að labba dáldinn spotta til að sækja póstinn okkar og ég skrapp að ná í hann eitt kvöldið. Þá hleypur svona lítill hvolpur yfir gangstéttina fyrir framan mig. Æjj nei ekki hvolpur, risa kakkalakki. Ekkert smá stór!!! Ég hef reyndar ekki séð mikið af þeim hingað til sem betur fer en þessi kvikindi geta verið huge!

Við fórum aftur í rútuna á laugardaginn til að keppa á móti Clayton State. Það tók okkur rúma 4 tíma að keyra þangað. Leikurinn gekk ágætlega og við vorum yfir 1-0 í fyrri hálfleik en þær náðu að jafna í seinni. Ég minntist á það í seinasta bloggi að ef það er jafntefli þá er framlenging. Í seinni framlengi fæ ég sendingu frá Kristin sem er framherjinn okkar og ég næ að skora…. með vinstri :D Reglurnar eru þannig að sá sem skorar fyrst vinnur þannig að við unnum leikinn. Þetta var alveg æðislegt það hlupu allir að mér og fögnuðu eins og við hefðum unnið meistaratitilinn. Ég er ekki með neinar myndir úr ferðinni en þið getið kíkt hérna á eina frétt:

http://aasupirates.com/sports/wsoc/2008-09/news/ws92008

Herbergisfélagar okkar Bjargar voru hjá fjölskyldum sínum um helgina þannig að við ákváðum að drífa okkur í að framkalla myndir sem við höfum alltaf ætlað að gera. Við röltum í Target sem er svona ca 15 mínútna ganga. Þegar við erum loksins komnar reynist vélin vera biluð og það var ekki hægt að framkalla neitt í göngufæri. Við ákváðum að fresta því en við drifum okkur í gær að framkalla myndirnar okkar. Ég ætla að setja myndirnar upp á vegg í dag, get ekki beðið!

Ég er ekki með neinar myndir núna en ég ætla að reyna að skella nokkrum inn á morgun af herberginu mínu og meira skemmtilegt.

En annars svona í lokin þá vil ég minnast á að í dag eru tvö ár síðan ég og Tommi byrjuðum saman. Ég ætla að fagna með því að kaupa Sex and the City myndina sem kom út í dag, jeijj!

Vonandi hafið þið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Helgin í Tennessee

Wednesday, 17. September 2008

Helgin sem leið einkenndist af endalausri rútuferð og hótelgistingu. Við fórum seinasta fimmtudag til Knoxville Tennessee… Það tók okkur bara 7 klst að komast þangað… Á föstudaginn kepptum við svo á móti Carson-Newman. Okkur gekk alveg ágætlega þangað til í seinni hálfleik þegar þær komust yfir okkur og unnu 3-1. En við gátum ekki svekkt okkur lengi á því afþví að við kepptum svo aftur á sunnudaginn í Greenville á móti Tusculum (gamla liðið hennar Dagbjartar). Það var mjög erfiður leikur og þegar 90 mínútur voru liðnar var staðan 1-1. Bandaríkjamenn eru með öðruvísi reglur en öll hin löndin þannig að það var framlenging… tvisvar 10… ég vissi ekki af þessari reglu þannig að þegar að framlengingin var búin og staðan enn 1-1 átti ég von á vítaspyrnukeppni en neibb… leikurinn búinn. Þetta er víst gert til að minnka líkurnar á jafntefli.

Hér er mynd af Tuscululum vellinum. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég steig á fótboltavöll, eða réttara sagt, bandarískan fótboltavöll. Það eru málaðar gular línur á og í kringum völlinn og svo eru sett tvö mörk fyrir framan þessar stangir sem ég veit ekki alveg hvað heita.

Það er gaman að sjá hvað foreldrar stelpnanna eru duglegir að koma á leiki. Þau keyra marga klukkutíma á milli fylkja og gista á hótelum með okkur. Það getur líka verið dáldið hentugt að fá þau með. Liðið splæsir til dæmis ekki á eftirrétti þegar við förum út að borða en þá er bara tekið upp símann, hringt í næsta foreldri og voilá! Eftirréttur bíður eftir manni uppá hótelherbergi. Þau eru öll mjög góð líka, búin að fá nokkur boð um að koma og eyða thanksgiving hjá þeim. Talandi um thanksgiving, það verða allir alltaf jafn hissa þegar ég segist ekki hafa bragðað “pie” en það er allt annar pakki en kökur og gúmmelaði. Ég veit allavegana að ég mun fá gómsæta pumpkin pie um þakkargjörðarhátíðina, mmmm hlakka til!

Hér eru tvær “liðsmyndir” frá helginni. Fyrir ofan erum við á Applebee’s sem er eiginlega eins og Fridays eða Rugby Tuesday heima, mjög gott. Myndin var tekin með svona 10 sekúndna stillingu, ég er orðin frekar góð í þessu. En fyrir neðan erum við fyrir framan rútuna okkar sem var orðin nokkurs konar heimili númer 2.

Það er annars lítið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Ég fór reyndar með þvottinn minn í dag og ég get ekki beðið eftir að klæðast hreinum fötum á morgun. Við busarnir förum með þvottinn okkar á svona 24 hour laundry dæmi sem er fullt af alls konar skrítnu fólki. Svo sjáum við pöddur og kakkalakka skríða meðfram gólfunum… mjög girnilegt. En fötin mín eru hrein sem skiptir öllu máli :)

Hér erum við að hita upp fyrir Tusculum leikinn. Þið getið séð aðeins í gulu línurnar sem merka völlinn okkar.

Ég ætla að skella mér í háttinn, vonandi hafið þið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Fleiri Útileikir

Wednesday, 10. September 2008

Hæ elskurnar,

Ég sagðist ætla að blogga fljótlega eftir leikinn en hann reyndist vera lítið spennandi… Við keyrðum í þrjá tíma til að fara að keppa og töpuðum 1-0. Það er lítið um hann að segja nema það að við vorum alls ekki góðar því miður. En við ætlum okkur bara betur næst og erum strax farnar að vinna í næsta leik.

Hérna erum við á leiðinni til St. Augustine og Emily og Jessy eru að hjálpa mér með heimalærdóminn.

Á fimmtudaginn keyrum við í rúma sjö tíma til Tennesse til að keppa tvo leiki yfir helgina. Fyrsti er á föstudaginn á móti Carson-Newman en seinni er á móti gamla liðinu hennar Dagbjartar, Tusculum og við ætlum okkur að sjálfsögðu að vinna! :) Þannig að það er spennandi helgi framundan.
Það er alveg hellingur að gera í skólanum, nóg með heimaverkefni og svoleiðis. Svo er próf í líffræði á fimmtudaginn, veit ekki alveg hvernig mér á eftir að ganga þar. Bara dugleg að læra.
Það hefur lítið gerst undanfarið nema það að gærdagurinn fór í að þrífa. Ég þreyf eldhúsvaskinn, klósettið og sturtuna hátt og látt. Ég er semsagt mjög stolt af þessu, ég er að verða fullorðin ;
Ég ætla bara að hafa þetta stutt í þetta skiptið en ég mun blogga fljótlega aftur. Hafið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Sól og Sumar

Sunday, 7. September 2008

Dagurinn í dag var alveg einstaklega fallegur (6. sept). Sólin skein og ég er ekki frá því að það hafi náð í 40 gráður. Ég var svo heppin að vera boðin í einka sundlaug hérna í nágreninu og ég tók því fagnandi. Fékk loksins tækifæri til að losna við fótboltabrúnkuna en ég er nánast bara með brúnku í andliti, á höndum og á hnjánum. Mjög svo fallegt, en ég náði að minka hana aðeins í dag.

Hér erum við í sundlauginni. Kelli og Carey búa nánast hliðná skólanum og hafa aðgang að þessari girnilegu sundlaug.

Það eru 6 freshmen í liðinu mínu. Við búm allar í tveim íbúðum sem eru hlið við hlið. Ég er bara búin að búa héna í rúman mánuð en samt erum við allar orðnar rosalega nánar. Ég er semsagt í íbúð með Björgu, Davi og Erin Holt á meðan Jessy og Erin O’rourke búa beint á móti. Við skelltum okkur fínt út að borða um daginn og dressuðum okkur aðeins upp. Ég ákvað að fá mér fisk í matinn en hann á víst að vera mjög góður hérna. Ég verð að viðurkenna að mér finnst íslenski fiskurinn hreynlega bestur. Verð að fá mér fisk þegar ég kem heim. Ég smellti einni mynd af okkur fyrir utan veitingastaðinn.

Frá vinstri er Erin O., Björg, Davi, Jessy og Ég. Æðislegar stelpur.

Ég veit ekki hversu mikið þið vitið um fellibylina hérna en það var einn, sem heitir Hanna, að fara hérna framhjá. Við rétt sluppum þannig að veðrið í gær var ekki upp á marga fiska. Það er gaman að fá að upplifa þetta. Við fáum reglulega uppfærslu um fellibylinn og við áttum að vera viðbúin að þurfa að flýja bæjinn þannig að við áttum að vera búin að skipuleggja stað til að gista o.s.frv. En við sluppum sem er gott. Annars fór annar fellibylur hér fram hjá fyrstu vikuna mína og ég hef aldrei lent í jafn mikillri rigningu. Regnhlífin hélt ekki undan öllu vatninu.

Á morgun er fyrsti útileikurinn okkar. Það tekur rúma 2 og hálfa klukkutíma að keyra þangað. Tímabilið á víst eftir að einkennast af löngum rútuferðum en lengsta er alveg 6 tímar held ég. Við keyrum til St. Augustine, Florida þar sem við keppum á móti Flagler. Við verðum að vinna þennan leik, erum taplausar hingað til 2-0.

Ég þarf að koma mér í háttinn. Fyrst vil ég skella inn einni mynd sem var tekin í herberginu mínu um daginn. Þetta eru við busarnir og Jake, góður vinur okkar. Erin H. er líka á myndinni sem vantaði á hina. Góðir tímar.

Ég mun blogga fljótlega aftur, læt vita hvernig leikurinn fór og svona. Hafið það gott!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Allt á Fullu

Thursday, 4. September 2008

Dagurinn í dag var alveg ágætur. Byrjaði á því að fara í Theater Appreciation kl. 11.00 í morgun, því næst var stærðfræði kl. 13.30. Eftir hann dreif ég mig í smá sjúkraþjálfun þar sem að tognaði framan í læri í seinustu viku en ég er orðin góð aftur. Æfing var kl. 15.00 og kl. 16.30 fóru ég og Björg í ensku tíma sem er alls ekki skemmtilegur. Þegar kl. var orðin 18.00 lauk seinasta tímanum mínum. Svona hljóma miðvikudagar hjá mér en seinni hluti dagsins einkennist af heimalærdómi og skype spjalli.

Tommi kenndi mér að setja inn myndir í dag þannig að ég ætla að gera eina saklausa tilraun til að skella inn nokkrum myndum.

Hér er liðið mitt “Pirates”, ég er þarna fremst #21

Það tók okkur Björgu svona eina og hálfa viku að koma okkur almennilega fyrir. Við erum reyndar ennþá að reyna að gera herbergin okkar fullkomin en jæja. Við keyptum okkur hillusamstæður og ég var svo dugleg að setja mína saman alveg sjálf. Þetta er alveg stærðarinnar hilla og mig langar að deila með ykkur reinslunni minni á að setja upp þessa myndar hillu:

Jáh, hún er á hlið. Það verður bara að hafa það. En já, þarna er herbergið mitt frekar tómlegt og í vinnslu. Ef þið kíkið á rúmið mitt þarna þá sjáið þið hvað það er hátt uppi. Ég þarf at taka tilhlaup til að geta farið upp í það. Algjör snilld!

Ég vil skella einni mynd inn í viðbót en hún er tekin eftir fyrsta æfingaleikinn minn hérna og er af mér, Björgu og Eric þjálfara. Ég fékk ofnæmi fyrstu tvær vikurnar mínar hérna þannig að augun mín eru frekar sjúskuð og sæt!

Það er svo búið að koma upp skemmtilegum link á heimasíðunni okkar þar sem að allir leikmennirnir kynna sig og svona. Endilega kíkið á þetta, mistökin eru sýnd líka og þetta er mjög skemmtilega klippt saman. Gaman að heyra hvernig íslenskan og enskan blandast saman hjá okkur Björgu. “Þórdís Pétursdóttir, Midfield, Hafnarfjörður, Iceland” uhh jámm, flott.

http://www.athletics.armstrong.edu/soccer/wsoccer2008rost.html

Smellið svo á “here” hjá meet the players!

Endilega kommentið og látið vita af ykkur. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, best að skella sér í háttinn. Hafið það gott elskurnar!

Ástarkveðjur,
Þórdís

Sætasti Sigur í Heimi!

Tuesday, 2. September 2008

Ég verð að byrja á að segja frá leiknum á laugardaginn, en liðið mitt "Pirates" var að spila fyrsta alvöru leikinn á laugardaginn og ég verð að segja að ég hef aldrei unnið jafn sætan sigur. Leikurinn var frekar jafn en á 98 mínútu var 3-3 en þegar það eru 20 sekúndur eftir fáum við aukaspyrnu rétt fyrir utan teyg. Spyrnan er tekin, boltinn fer í slánna og Erin í liðinu mínu hleypur á boltann og nær að setja hann í netið þegar það er nákvæmlega 1.1 sekúnda eftir. Þetta var alveg geggjað, alltaf gaman að vinna fyrsta leik tímabilsins.

Við spiluðum annan leik í dag þar sem við rústuðum andstæðingnum 5-0 sigur. Ég var svo nálægt því að skora í tvö skipti að ég er eiginlega alveg miður mín en jæja, svona er þetta. Kemur næst! Ég er ekki búin að taka neinar myndir af liðinu en ég er örugglega með eitthvað á netinu.

——–

Ok, ég kann ekkert á þessa síðu. Er búin að reyna að setja inn nokkrar myndir í svona 15 mín en það gengur ekkert… Ég reyni bara aftur næst.

Herbergisfélagarnir mínir eru alveg æðislegir. Þessar stelpur eru allar svo ólíkar en jafn skemmtilegar og þær eru ólíkar á sama tíma. Ég set inn myndir af þeim fljótlega líka.
Ég og Björg fórum í Savannah Mall í gær og fórum aðeins að versla. Tókum okkur góða stund í það og klukkan fór að vera margt. Við þurftum að labba til baka á campus (sem tekur svona 20 mín) með fullar hendur af pokum og Björg með risa lampa í einni hendi. Við vildum ekki hringja og angra stelpurnar til að biðja þær um að sækja okkur, ó nei! við erum sjálfstæðir íslendingar! Þannig gekk það að við fórum yfir risa götu og fólk glápti á okkur eins og við værum ekki alveg með lífið á hreinu. En við gengum stoltar okkar veg þangað til við fundum loksins einhverja innkaupakerru. Við gripum hana samstundis og gengum rosa ánægðar með lífið í íbúðina okkar. Það var hins vegar enginn heima þegar við komum loksins heim en ég var með 6 missed calls…. Þá höfðu Jessy og Davi herbergisfélagar okkar gengið um allt Target, sem er risastór búð, heillengi að leita af okkur. Við fengum langan og strangan fyrirlestur um hversu hættuleg bandaríkin eru eftir það og að hér er fólk með byssur og meira hættulegt… Ég lærði mína lexíu.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, en ég vil láta ykkur vita að það er hægt að horfa á heimaleikina okkar live á: http://www.athletics.armstrong.edu/soccer/wslive.htm
Kíkið endilega á þetta, það er líka hægt að sjá eldri leiki, þetta er allt merkt með dagsetningum.

Ástarkveðjur,
Þórdís.